Lýðveldishátíðarmerki
1944

In preservation at
National Museum of Iceland
Næla með merki lýðveldishátíðar árið 1944. Á merkinu er fánaskjöldur og sólarmerki fyrir ofan hann, tákn sólaruppkomu. Sjö upphleyptir sólargeislar ná út fyrir brún merkisins og á sjálfri sólarmyndinni stendur „17. júní 1944" upphleyptum stöfum. Aftan á merkinu er næla til að festa merkið við fatnað. Einnig er áletrunin „PAT STER 2066969" grafin í bakhlið festingarinnar fyrir næluna og „STERLING" stendur upphleyptum stöfum á bakhlið nælunnar. Fyrri áletrunin vísar til ákveðinnar tegundar öryggisnælu sem framleidd var í Bandaríkjunum á fjórða áratug 20. aldar. Seinni áletrunin vísar til málmtegundarinnar.
Þann 16. júní 1944 birtist í Morgunblaðinu eftirfarandi texti um nælurnar með merki lýðveldishátíðar:
MERKI LÝÐVELDISHÁTÍÐARINNAR er íslenskur fánaskjöldur og efst á skildinum er sólarmerki og í því stafirnir 17 júní 1944. Þjóðhátíðarnefndin ljet gera þessi merki úr málmi vestur í Ameríku og tókst að fá þau gerð og komið hingað, en lengi leit svo út, að ekki myndi hægt að koma merkjunum að vestan í tæka tíð. En það tókst og í gær var byrjað að selja merkin á götum bæjarins.
Merkin eru mjög smekklega gerð og eru gerð úr góðu efni. Þau eru seld á 10 kr. og geturþað varla kallast dýrt, samanborið við annað. Er ekki langt að minnast, að pappamerki voru seld hjer á götunum fyrir sama verð.
Það eina, sem jeg óttast um í sambandi við, merki þessi er, að ekki hafi verið hægt að fá nóg af þeim, því jeg er viss um að eftirspurnin verður mjög mikil og allir vilja eiga Þjóðhátíðarmerki til minningar um stofnun lýðveldisins.
Nælan var geymd í kistli sem Þjóðminjasafnið tók til varðveislu árið 2025 ásamt tveimur öðrum nælum sem í honum voru. Kistillinn var gerður af Guðmundi Magnússyni (f. 1818, d. 1914) í Helludal í Biskupstungum. Hann var mikill hagleikssmiður og jafnvígur á tré og málm og jafnvel saumaskap. Síðustu æviár hans bjó Guðmundur hjá Steinunni Magnúsdótttur (f. 1875, d. 1959) sonardóttur sinni í Helludal og sennilega hefur kistill þessi komið í hennar eigu eftir hans dag. Síðustu æviár sín bjó hún hjá syni sínum Guðmundi Tómassyni (f. 1900, d. 1984 ) og konu hans Steinunni Gísladóttur (f. 1901, d. 1984) að Steinum í Grindavík og hefur þá kistillinn fylgt henni þangað. Eftir lát þeirra hjóna kom svo kistillinn í vörslu Steinunnar (f. 1930) dóttur þeirra sem gaf kistillinn ásamt þremur nælum sem í honum voru er hún tók við honum.
Kistillinn og hinar tvær nælurnar eru skráður undir númerinu Þjms. 2025-11.
Main information
Title
Proper noun: Lýðveldishátíðarmerki
Dating
1944
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2025-11-2
Dimensions
3 x 2,2 x 0,6 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords



