Lýðveldishátíðarkortin
1944

In preservation at
National Museum of Iceland
Lýðveldishátíðarkortin, 10 stk. í umslagi. Kortin eru prentuð í litum á hvítan pappa. Á framhlið umslagsins er áletrun prentuð í rauðum og bláum lit í umgerð, má lesa: „Lýðveldishátíðarkortin/Stefán Jónsson teiknaði og gaf út“,
Á kortin eru teiknaðar ýmsar myndir, þ.á m. Alþingishúsið, Almannagjá, fálkar, fjallkonan og fleira.
Stefán Jónsson teiknaði og gaf út kortin. Frá þeim tæpu tveimur áratugum sem Stefán vann sem teiknari liggur töluvert eftir hann af þekktum verkum. Hann bar sigur úr býtum í samkeppnum um merki Lýðveldishátíðarinnar 1944, merki Sjálfstæðisflokksins, Landbúnaðarsýningarinnar 1947, merki Þjóðleikhússins, Krabbameinsfélagsins og Áburðarverksmiðju Reykjavíkurborgar.
Póstkortin voru í eigu Guðbjargar Elínborgar Þórðardóttur Ferrier (f. 1908, d. 1983) sem búsett var í Englandi og var einn stofnenda Íslendingafélagsins í London.
Ættingjar Guðbjargar buðu Þjóðminjasafni Íslands að taka við gripum úr eigu hennar til varðveislu árið 2022. Auk bæklingsins var einnig tekið við alþingishátíðardúk (2022-84-1) og bæklingi um Alþingishátíðina 1930 (2022-84-2).
Guðbjörg Elínborg Þórðardóttir fæddist árið 1908 á Ísafirði, foreldrar hennar voru Friðrika Engilbertsdóttur (f. 1870, d. 1943) og Þórður Bjarnason. Móðir hennar hafði flust til Ísafjarðar til að vinna í fiski. Þar komst hún í kynni við Þórð, sjómann fra Akranesi og í kjölfarið áttu þau Elínborgu. Þórður var þegar giftur og átti fjölskyldu á Akranesi og var einungis á Ísafirði á vertíðum. Guðbjörg var því alin upp af einstæðri móður.
Að loknu námi hjá Elínborgu árið 1922 fluttu mæðgurnar til Reykjavíkur þar sem Elínborg fékk vinnu við afgreiðslu í Verzluninni Edinborg. Sú verslun var í eigu Ásgeirs Sigurðssonar sem einnig var ræðismaður Bretlands á Íslandi. Hún stóð sig vel í starfi og fluttist nokkru síðar yfir á skrifstofu Ásgeirs. Elínborg var í kjölfarið send til Manchester til að læra vélritun og hraðritun árið 1928, eftir að hafa numið ensku veturinn áður. Á ræðismannahluta skrifstofunnar túlkaði Elínborg fyrir Breta sem tóku þátt í uppbyggingu Sænsk-íslenska Frystishússins og í gegnum þá vinnu kynnstis hún framtíðar eiginmanni sínum James Ferrier. Þau fluttu síðan til Bretlands og komu sér fyrir í suðausturhluta London, Forest Hill. Heimili þeirra átti eftir að verða vinsæll viðkomustaður Íslendinga á ferð. Hún var einn af stofnendum Íslendingafélagsins í London og síðar forseti félagsins og var sæmd riddarakrossinum fyrir þau störf árið 1970.
í safneign Þjóðminjasafns íslands er einnig varðveittur plastdúkur númer 2018-61-1 úr eigu Elínborgar.
Main information
Title
Lýðveldishátíðarkortin
Dating
1944
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-84-3
Dimensions
17,2 x 12,2 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords























