Bæklingur, skráð e. hlutv.
1929

In preservation at
National Museum of Iceland
Bæklingurá ensku um Alþingishátíðina 1930. Framan á bæklingnum stendur THE CELEBRATION OF THE ONE THOUSANDTH ANNIVERSARY OF THE ICELANDIC ALTHINGI 26TH OF JUNE 1930". Á forsíðunni er prentuð svarthvít ljósmynd af Almannagjá og þar fyrir neðan stendur Thingvellir. Bæklingurinn er brotinn í áttblöðungsbrot. Á bakhlið er kort af Íslandi þar sem búið er að merkja inn stærri vegi landsins og flokka þá í tvo flokka: Good motoring road og tolerably good motoring road. Í bæklingnum eru prentaðar þrjár ljósmyndir sem sýna Reykjavík (norð-vestur horn Tjarnarinnar), Alþingishúsið og Dómkirkjuna og Reykjavíkurhöfn. Í bæklingnum eru hagnýtar upplýsingar fyrir fólk sem hyggst koma á Alþingishátíðina 1930 en bæklingurinn er prentaður árið 1929. Í honum er m.a. að finna upplýsingar um með hvaða skipum hægt er að ferðast til Íslands og hvað farmiðinn kostar. Einnig eru upplýsingar um hvar hægt er að gista í Reykjavík og hótelkostnað og hvernig hægt er að ferðast á milli Reykjavíkur og Þingvalla.
Þar kemur fram að hægt verði að leigja tjald og að á Þingvöllum verði apótek, læknar, póstþjónusta, símaþjónusta og gjaldeyrisskiptiþjónusta. Tekið er fram að hægt sé að fá nánari upplýsingar hjá Magnúsi Kjaran í Reykjavík framkvæmdastjóra Alþingishátíðarinnar.
Í safneign Þjóðminjasafns Íslands er m.a. varveitt ljósmynd JK1-11436 af Magnúsi Kjaran.
í bæklingnum er einnig nafnalisti yfir meðlimi undirbúningsnefndar Alþingishátíðarinnar 1930:
Tryggvi Þórhallsson
Jóhannes Jóhannsson
Ásgeir Ásgeirsson
Jónas Jónsson
Magnús Jónsson
Pétur G. Guðmundsson
Sigurður Eggerz
Bæklingurinn var í eigu Guðbjargar Elínborgar Þórðardóttur Ferrier (f. 1908, d. 1983) sem búsett var í Englandi og var einn stofnenda Íslendingafélagsins í London.
Ættingjar Guðbjargar buðu Þjóðminjasafni Íslands að taka við gripum úr eigu hennar til varðveislu árið 2022. Auk bæklingsins var einnig tekið við alþingishátíðardúk (2022-84-1)og lýðveldishátíðarkortum (2022-84-3).
Guðbjörg Elínborg Þórðardóttir fæddist árið 1908 á Ísafirði, foreldrar hennar voru Friðrika Engilbertsdóttur (f. 1870, d. 1943) og Þórður Bjarnason. Móðir hennar hafði flust til Ísafjarðar til að vinna í fiski. Þar komst hún í kynni við Þórð, sjómann fra Akranesi og í kjölfarið áttu þau Elínborgu. Þórður var þegar giftur og átti fjölskyldu á Akranesi og var einungis á Ísafirði á vertíðum. Guðbjörg var því alin upp af einstæðri móður.
Að loknu námi hjá Elínborgu árið 1922 fluttu mæðgurnar til Reykjavíkur og Elínborg fékk vinnu við afgreiðslu í Verzluninni Edinborg. Sú verslun var í eigu Ásgeirs Sigurðssonar sem einnig var ræðismaður Bretlands á Íslandi. Hún stóð sig vel í starfi og fluttist nokkru síðar yfir á skrifstofu Ásgeirs sem virkaði eins og ræðismannaskrifstofa Bretlands í Reykavík. Elínborg var í kjölfarið send til Manchester til að læra vélritun og hraðritun árið 1928, eftir að hafa numið ensku veturinn áður. Á ræðismannahluta skrifstofunnar túlkaði Elínborg fyrir Breta sem tóku þátt í uppbyggingu Sænsk-íslenska Frystishússins og í gegnum þá vinnu kynnstis hún framtíðar eiginmanni sínum James Ferrier.
Þau fluttu síðan til Bretlands og komu sér fyrir í suðausturhluta London, Forest Hill. Heimili þeirra átti eftir að verða vinsæll viðkomustaður Íslendinga á ferð.
Hún var einn af stofnendum Íslendingafélagsins í London og síðar forseti félagsins og var sæmd riddarakrossinum fyrir þau störf árið 1970.
í safneign Þjóðminjasafns íslands er einnig varðveittur plastdúkur númer 2018-61-1 úr eigu Elínborgar.
Main information
Producer: Prentsmiðjan Gutenberg
Owner: Guðbjörg Elinborg Þórðardóttir Ferrier
Donor: James Arthur Ferrier
Owner: Guðbjörg Elinborg Þórðardóttir Ferrier
Donor: James Arthur Ferrier
Dating
1929
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2022-84-2
Dimensions
22 x 12,7 cm
Record type
Keywords

















