Nemendahandavinna Vigdísar 1947
1947

In preservation at
Reykjavík City Museum
Nemendavinna Vigdísar úr Handavinnudeild Handíða- og myndlistaskólans 1947.
a) Prjónageymsla.
Efni: Bómull.
Tækni: Vélsaumur. Handsaumur.
Vélsaumuð prjónageymsla. Fóðrað stykki sem er hólfað niður að innan til að geyma í prjóna. Fangamarkið VP er saumað á framhliðina, mjóar efnisræmur úr fóðurefninu mynda stafina. Stafirnir saumaðir niður í höndum. Prjónageymslan er bundin saman með bandi úr sama fóðurefni. Stærð: 40 x 38 sm.
Haft er eftir bekkjarsystur Vigdísar úr handavinnukennaranáminu Rannveigu Sigurðardóttur, þegar hún sá prjónageymslu Vigdísar: “Það var allt svo frumlegt hjá henni Vigdísi, hún skar sig úr hópnum”. Skrásetjarar heimsóttu Rannveigu árið 2017 til að spyrja hana um handavinnunámið.
b) Barnakragi.
Efni: Bómull.
Tækni: Hekl. Handsaumur.
Nemendavinna úr Handavinnudeild Handíða- og myndlistaskólans 1947, samkvæmt merkingnum Vigdísar Pálsdóttur.
Heklaður barnakragi. Hekluð lengja með fastahekli þar sem farið er í annan lykkjuhelminginn. Heklið er látið mynda munstur í ytri kantinum. Kraginn er hnepptur með hneslu og tölu. Kraginn er heklaður úr fíngerðu heklugarni.
c) Sýnishorn af sængurveri í 1/4 stærð.
Efni: Bómull.
Tækni: Vélsaumur. Útsaumur.
Nemendavinna úr Handavinnudeild Handíða- og myndlistaskólans 1947, samkvæmt merkingnum Vigdísar Pálsdóttur.
Sýnishorn af sængurveri í ¼ stærð. Vélsaumur og útsaumur. Sængurverið er saumað saman með tvöföldum saumi. Bendlabönd saumuð í faldinn að neðan. Breitt lek / fall er saumað þvert yfir sængurverið að framan og upphafsstafirnir VP saumaðir með flatsaumi fyrir ofan lekið / fallið. Stærð á sængurveri: 50 x 37 sm.
d) Handavinnupoki.
Efni: Strigi.
Tækni: Handsaumur. Útsaumur.
Nemendavinna úr Handavinnudeild Handíða- og myndlistaskólans 1947, samkvæmt merkingnum Vigdísar Pálsdóttur.
Handavinnupoki. Tillaga að verkefni fyrir 9-10 ára nemendur. Pokinn er úr bláum hessianstriga með útsaumuðum vasa úr blárúðóttu efni (handavinnupokaefni).
Útsaumsspor: Þræðispor, oddaspor, krosssaumur, lykkjuspor, klóspor og leggsaumur (kontorstingur / varpleggur). Pokinn er allur handsaumaður. Önnur hliðin er vörpuð (saumuð) saman með þéttu spori brún í brún. Það var erfitt að greina sporið hvort það væri unnið í vél eða í höndum. Þræðisporið er notað sem skraut á pokann. Pokinn er ekki alveg fullfrágenginn. Stærð á poka: 37 x 30.5 sm.
Skrásetjarar (SG og SB) telja að verkefnahugmyndin hafi verið framúrstefnuleg á þessum tíma, bæði hvað varðar efnisval og útfærslu.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Main information
Vigdís Pálsdóttir, Attributed
Donor: Vigdís Pálsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Donor: Vigdís Pálsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Title
Proper noun: Nemendahandavinna Vigdísar 1947
Dating
1947
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-34-13
Place
Staður: Myndlista- og handíðaskóli Íslands, Skipholt 1, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Skólahandavinna
Place of origin
64°8'29.0"N 21°54'37.4"W
