Án titils

In preservation at
Akureyri Art Museum
Gjöf í safneign: Mynd eftir Hauk Stefánsson (f. 1901 - 1953)  Haukur Stefánsson var fæddur á Vopnafirði, fluttist ungur til Kanada með móður sinni Önnu Guðmundsdóttur. Faðir hans var Stefán Einarsson bóndi í Möðrudal (einnig afi Stórval - Jón Stefánsson faðir Stórval var bróðir Hauks). Haukur var menntaður í myndlist vestanhafs í Winnipeg og Chicago, en flutti til Íslands 1932 og settist að á Akureyri 1933 ásamt konu sinni Ástríði Jósefsdóttur. Hann náði aldrei að helga sig myndlistinni að fullu en vann lengst af sem húsamálari, málaði timburkirkjuna að Munkaþverá og skreytti prédikunarsól og svalarbríkur svo eitthvað sé nefnt, ásamt því að mála leiktjöld. Hann vann hjá Leikfélagi Akureyrar frá árinu 1935 og málaði fyrir 26 uppsetningar leikfélagsins, en leiktjöldin eru flest ef ekki öll glötuð að talið sé. Hann málaði einnig sviðsmyndir fyrir aðra aðila. Haukur var aðeins 54 ára að aldri þegar hann lést. Sjá grein með frekari upplýsingum: https://timarit.is/page/1832550#page/n20/mode/2uphúsamálari Gefendur: Eiginkona og börn (dánarbú) Jóns Bjarnasonar úrsmiðs (f. 1936 - 2024). Eftirlifandi eiginkona er Sigrún Helgadóttir og börn hans eru Sif, Ólöf og Bjarni Jónsbörn. Myndin kemur úr búi foreldra Jóns en faðir hans, Bjarni, var vinur Hauks. 

Main information

Title
Art title: Án titils
Object-related numbers
Museumnumber a: Listak-841
Dimensions
121 x 97 x 0 cm Stærð með ramma: 133,5 x 110 x 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Aðalskrá
Classification
Edition/Series
1 / 1