Prjónað ungbarnasett

1980
In preservation at
Reykjavík City Museum
Heimaprjónað ungbarnasett, peysa, húfa og vettlingar. Allt í stíl, prjónað með garðaprjóni, þrír litir, dökkblátt, milliblátt og grátt.  Fötin eru prjónuð eftir uppskrift  úr þýsku eða dönsku barnaprjónablaði. Garnið var keypt í versluninni Hof í Ingólfsstræti. Svo vildi til að dökk bláa garnið var búið áður en náðist að klára að prjóna húfuna, og því var notað annað garn (afgangur sem var til) í hnakkastykkið (það var alltaf verið að spara!). Herborg Sigtryggsdóttir prjónaði á son sinn Þorgeir Ómarsson f. 1980.

Main information

Title
Proper noun: Prjónað ungbarnasett
Dating
1980
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2025-35-5
Place
Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær
Record type
Keywords