Lyfseðilsumslag

In preservation at
Pharmacy Museum
Lyfseðilsumslag er umslag sem viðskiptavinir fengu til að geyma í fjölnota lyfseðla á milli þess sem þeir komu í apótekið til að fá afgreidd lyf. Umslögin voru gerð af metnaði eftir danskri fyrirmynd á fyrrihluta síðustu aldar. Á umslaginu er bæði teikning af húsinu þar sem apótekið var í Aðalstræti 2, Reykjavík og af afgreiðslunni eins og hún var. Efst er nafn apóteksins og teikning af styttu Ingólfs Arnarsonar. Undir myndunum er símanúmerið 1330. Neðst svo er nafn apótekarans Peter L Mogensen (4.8.1872-4.4.1947) en Peter Lassen Mogensen var stofnandi og fyrsti apótekari Ingólfs Apóteks, 1928-1947. Á Bakhlið umslagsins eru taldar upp ýmsar vörur sem seldar voru í apótekinu ásamt auglýsingu um lyfjakistur og þjónustu við skip og báta.

Main information

Object-related numbers
"Museumnumber b": 2024-23
Dimensions
11 x 7.5 cm Lengd: 11 Breidd: 7.5 cm
Place
Staður: Ingólfsapótek, Aðalstræti 2, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Lyfjafræðingatal. Lyfjafræðingar á Íslandi 1760-2002. Lyfjafræðingafélag gaf út 2004.

Place of origin

64°8'52.8"N 21°56'31.5"W