Lyfseðilsumslag

1928 - 1950
In preservation at
Pharmacy Museum
Lyfseðilsumslag er umslag sem viðskiptavinir fengu til að geyma í fjölnota lyfseðla á milli þess sem þeir komu í apótekið til að fá afgreidd lyf. Umslögin voru gerð af metnaði eftir danskri fyrirmynd á fyrrihluta síðustu aldar. Á umslaginu er mynd frá Akureyri tekin handan fjarðarins. Einnig kemur fram heitið Akureyrar Apótek og nafn apótekarans O. C. Thorarensen  og heimilisfangið Hafnarstræti 104. Beggja vegna við myndina er teikning af Askepiosar stafnum (Asklepios var grískur guð lækninga) og slöngunni. Oddur Carl Thorarensen (21.11.1894-10.5.1964) var apótekari í Akureyrar Apóteki 1919-1963. Á bakhlið umslagsins eru taldar upp helstu vörur sem voru til sölu í apótekinu. 

Main information

Dating
1928 - 1950
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2024-9
Dimensions
12 x 7.5 cm Lengd: 12 Breidd: 7.5 cm
Place
Staður: Akureyrarapótek, Akureyrarbær
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
References
Lyfjafræðingatal. Lyfjafræðingar á Íslandi 1760-2002. Lyfjafræðingafélag gaf út 2004.

Place of origin

65°41'24.9"N 18°5'23.7"W