Minningarljóð, + tilefni

1920
In preservation at
National Museum of Iceland
Skrautskrifað og myndskreytt minningarljóð í ramma, undir gleri. Spjaldið er límt í svartmálaðan tréramma, en er tekið að losna. Upphafsstafir höfundar eru skrifaðir undir ljóðið, SS eða JJ, en óvíst er um hvern ræðir. Í neðra vinstra horni stendur "Reykjavík - 1920" og í hægra neðra horni er skjalið er undirritað af skrautritara þess, Pétri Pálssyni (f. 1877, d. 1938). Myndskreytingin er litrík og eru m.a. myndskreyttar súlur meðfram langhliðum spjaldsins. Innrammaða ljóðið er mjög áþekkt minningarljóði sem finna má í Byggðasafninu í Görðum á Akranesi (2023-199-1), en það er einnig eignað Pétri skrautskrifara. Gefandi er Jónína Leósdóttir (f. 1954) en skjalið létu föðurafi og -amma hennar ramma inn árið 1920. Minningarljóðið var hengt upp á vegg heima hjá þeim hjónum, sjómanninum og fisksalanum Eggerti Brandssyni (f. 1877, d. 1951) og Jónínu Erlendsdóttur (f. 1878, d. 1954) húsmóður, til minningar um ungan son sem þau misstu. Sonur þeirra var Árni Eggertsson (f. 1918, d. 1920). Jónína flutti í seinni tíð á Nesveg, nú Neshaga, og fannst munurinn þar í geymslu árið 2020. Samkvæmt gefanda var á þessum tíma algengt að fá skrautskrifara til að útbúa slík skjöl, til minningar um látna ættingja. Þá er óvíst hvort ljóðið hafi verið samið sérstaklega fyrir foreldra drengsins eða hvort hjónin hafi valið það úr birtum ljóðum.

Main information

Dating
1920
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2021-62
Dimensions
60 x 44.5 cm Lengd: 60 Breidd: 44.5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn