Photo: Byggðasafnið á Skógum
Photo: Byggðasafnið á Skógum
Photo: Byggðasafnið á Skógum
Photo: Byggðasafnið á Skógum

Bikar, sem virðingartákn

1919
In preservation at
Skógar museum
Silfurbikar gefinn afa gefanda, Eyjólfi Guðmundssyni í Hvammi í Landsveit árið 1919 af Fossafélaginu Títan, að frumkvæði Einars Benediktssonar. Bikarinn er danskur frá árinu 1919. Einar Eyjólfsson frá Hvammi fékk bikarinn eftir föður sinn.  Í bikarinn er grafið eftirfarandi: Eyjólfur Guðmundsson – Júlí 1919 – Með þakklæti frá Titan. Bikarinn er 18,3 cm á hæð og þvermálið að ofan er 11,2 cm en 8,7 cm að neðan. Undir bikarnum eru þrír gæðastimplar. Stimpill með þremur turnum er tákn fyrir danskt silfur ásamt tölunni 19 sem er stytting fyrir 1919, árið sem gripurinn var framleiddur. Turnarnir þrír tryggja líka að silfurmagnið er að lágmarki 0.826% sem er lágmarksviðmið silfursmíðar samkvæmt dönskum lögum frá 1893. Skjöldur með bókstöfunum D og A milli hamars sem er merki Dansk Arbejde sem var stofnað árið 1908 til að stuðla að aukinni neyslu á dönskum vörum. CHF er gæðastimpill málmprófarans og silfursmiðsins Christian F. Heise sem vann við silfursmíði frá árunum 1904 til 1932.

Main information

Dating
1919
Object-related numbers
Museumnumber a: R-4622
Dimensions
0 x 11.2 x 18.3 cm Breidd: 11.2 Hæð: 18.3 cm
Place
Staður: Hvammur 1, 851-Hellu, Rangárþing ytra, Land, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
References
Safnskrá Skógasafns Þ. T. Dickson, Thomas. Dansk Design. Kaupmannahöfn: Gyldendal, 2009. Bls. 463. Online Encyclopedia of Silver Marks, Hallmarks & Maker‘s Marks. Danish Silver Hallmarks ~ After 1893. Sótt 22. Febrúar 2016 á: http://www.925-1000.com/dm_General.html

Place of origin

64°1'25.7"N 20°9'1.8"W