Bimini 40
1965

In preservation at
Skógar museum
Talstöð, Bimini 40, gerð: 23w AM talstöð. Framleiðsluland: USA, tíðnisvið: 2 – 3 mHz, stærð B 22 X H 9 X D25 sm. Efni: Álundirstaða með grænum plastlokum og grárri framhlið. Stöðina átti upphaflega Orkustofnun, Jarðvarmadeild, eða frá 1971 til 1981. Stöðin var í Land Rover jeppa R-13036, kallmerki Ragnar 13036.
Bimini stöðvar voru vinsælar hjá eigendum jeppa og fjallabíla. Stöðin var ekki með mikla sendiorku, 23 wött náðust út í loftnet. Innfluttar stöðvar á þessum árum voru allar mun fyrirferðameiri. Það komu örfá eintök af Bimini 40 því önnur tók við, Bimini 50. Bimini 40 er 4 rása með kristalstýrðum sendi og viðtæki. Viðtækið er með einum lampa í inngang sem er um leið Osc. Að öðru leyti er viðtækið transistorar. Sendirinn er tveir lampar. Stöðin er 12 v Dc, Sami hljóðútgangur er fyrir hátalara og mótun hljóðs inn á sendinn. Þetta er styrkmótuð sending (Amplitude modulation). Sendiaflið er 23W. Rofi er á framhlið til að slökkva á glóð sendilampanna ef spara þarf rafmagn. Þrjár aðrar stillingar eru á framhliðinni, styrkstillir með rofa, bylgjuskiptari og fínstillir innbyggðrar loftnetsspólu. Ljósapera sem sýnir sendistyrk er í grilli hátalarans. Eftir því sem ljósið er bjartara með fínstillingu loftnetsspólunnar var sendingin betri. Talstöðin kom með heyrnatóli sem er með hátalara, sendirofa og hljóðnema. Algengt var að skipta því út fyrir léttan hljóðnema. Framleiðandi stöðvanna hét Pearce Simpson. Inc. á Miami, Florida. Framleiðslan hófst 1965 og sama ár voru þessar stöðvar fluttar til Íslands af fyrirtækinu Hitatækni sem þá var staðsett í Skipholti 50 í Reykjavík. Eigandi var Ásgeir Sigurðsson. Stöðin var ódýr miðað við aðrar sem voru að koma á markaðinn á sama tíma.
Samantekt heimildar: Sigurður Harðarson rafeindavirki.
Main information
Title
Proper noun: Bimini 40
Dating
1965
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: SHR-23
Dimensions
25 x 22 x 9 cm
Lengd: 25 Breidd: 22 Hæð: 9 cm
Place
Staður: Grensásvegur, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Samgöngusafnið
Undirskrá: Fjarskiptasafn Sigurðar Harðarsonar
Keywords
Keyword: Talstöð





