Peningakassi

1887
In preservation at
Akureyri Museum
Peningakassi úr tré, fætur úr hreindýrshorni, látúnsleginn. Gerður af Stefáni Eiríkssyni myndskera. Peningakassinn var gerður fyrir afa Steingríms, Svein Magnússon, sem bjó á Hákonarstöðum á Jökuldal. Kassinn er merktur Sveinn MSS 1887. Stefán var frá Mel á Jökuldalsheiði. Hann gerði kassann fyrir austan áðu en hann fór til náms. Sveinn mun hafa stutt Stefán til náms í Danmörku. Kassinn hefur verið í eigu fjölskyldu Magneu, dóttur Sveins, móður Steingríms. Foreldrar Steingríms bjuggu fyrst á Hákonarstöðum en síðar á Akureyri, frá 1920, en þá var Steingrímur 5 ára.  Kassinn er úr tré með skrauti úr hreindýrshorni og látúnsleginn. Hann er útskorinn. Á loki er skjöldur úr horni og á honum nafn eigandans, SVEINN MSS og á framhlið eru tveir látúnsskildir, á öðrum er ártalið 1887, en á hinum upphafsstafirnir SM. Kassinn stendur á fótum úr horni. Efnið í kassann kemur úr ýmsum áttum; Botninn er úr garðabandsenda, en lok inni í kassanum og í litla kassanum er úr vindlakössum sem Stefán fékk hjá kaupmanni á Seyðisfirði. Í loki kassans eru hólf merkt fyrir krónur og aura og í aðalkassanum eru lítill kassi fyrir skjöl, en til hliðar við hann eru skúffur. Öðru megin ein fyrir spesíur en hinum megin tvær, fyrir 10 og 20 kr. gullpeninga. Á kassanum er leynileg læsing sem opnuð er með því að snúa hringlaga gæti á miðju skrautsins úr horninu.  Kassinn var oft sýndur gestum og var nokkurs konar gestaþraut að reyna að opna hann. Gert hefur verið við hjarir og einnig hornskrautið að framan, það var brotið öðrum megin, en Steingrímur skar út nýtt stykki. Hann fékst sjálfur við útskurð og lærði hjá Geir Þormar á Akureyri.

Main information

Dating
1887
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1993-783
Dimensions
17 x 14 x 16 cm Lengd: 17 Breidd: 14 Hæð: 16 cm
Place
Staður: Grundargata 5, 600-Akureyri, Akureyrarbær, Oddeyri, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Keywords
Keyword: Peningakassi
Depiction:
Bókstafur
Depiction:
Ártal

Place of origin

65°11'33.5"N 15°15'8.9"W