Barmmerki
1930

In preservation at
National Museum of Iceland
Orða með áföstum borða í kassa. Framan á orðunni er merki Alþingishátíðarinnar 1930 greypt og neðst er talan 900 í smáu letri, aftan á orðunni stendur hringinn í kringum orðuna eftirfarandi texti: ALÞINGISHÁTÍÐIN Á ÞINGVÖLLUM 1930. Borðinn er í íslensku fánalitunum og á honum er öryggisnæla til að festa orðuna í fatnað. Aftan á borðanum hefur verið saumað með hvítum þræði. Þvermál orðu er 3,5 cm og lengd borða er 4 cm. Orðan er í ferhyrninglaga dökkbláu boxi (stærð 5,5 x 5,5 x 2 cm). Í honum er mótaður hringur úr flaueli sem orðan hvílir í, innan á lokinu er merki Alþingishátíðarinnar prentað á silkiefni. Lokið er laust frá botninum, sjá má leifar af límbandi sem notað hefur verið til að festa boxið saman á einhverjum tímapunkti.
Alþingishátíðarmerki: Efst er rísandi sól. Fyrir miðju eru klettadrangar í líki víkingaskips út á sjó. Þessir tveir klettadrangar nefnast öðru nafni Strókar og eru staðsettir efst í hamravegg Almannagjár, rétt sunnan við Drekkingarhyl, og líkjast nokkuð steingerðu víkingaskipi. Neðst er skrifað með rúnaletri: Alþingishátíðin. Fyrir nánari upplýsingar um merkið sjá: Alþ-61.
Upplýsingar frá gefanda:
Orða, barmmerki úr dánarbúi Ólafs Breiðfjörð Finnbogasonar (f. 1918, d. 2010) og Kristjönu Jónsdóttur (f. 1920, d. 2020). Ólafur dansaði vikivaka á Alþingishátíðinni 1930 ásamt systkinum sínum Guðrúnu Breiðfjörð (f. 1915, d. 2003), Valdimar Breiðfjörð (f. 1920, d. 1942), Sigurði Breiðfjörð (f. 1916, d. 1995) og Kristrúnu Breiðfjörð (f. 1917, d. 1986). Í viðurkenningarskyni fengu þau öll orðu með merki Alþingishátíðarinnar 1930.
Safnið hefur einnig til varðveislu búninginn (Þjms. 2019-111-1) sem Ólafur Breiðfjörð dansaði vikivaka í á hátíðinni og tvær ljósmyndir sem fóru í Ljósmyndasafn Íslands í júní 2022. Á annarri myndinni má sjá systkinin sem dönsuðu vikivaka á Alþingishátíðinni 1930 með orðurnar sínar. Á hinni myndinni er mun stærri barnahópur í eins búningum.
Main information
Dating
1930
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2019-111-2
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords





