Búningur, almennt
1930

In preservation at
National Museum of Iceland
Alþingishátíðarbúningur, barna. Treyja og stuttbuxur saumaðar úr blágrænu flaueli og fóðraðar með ljósbláu röndóttu fóðri. Búningurinn ber þess merki að vera gamall en er þó í góðu ásigkomulagi. Á honum eru nokkrir blettir.
Treyjan er með rúnað hálsmál og síðar ermar. Við hálsmálið er klauf með sex gylltum skrauthnöppum og gylltri vírblúndu. Meðfram hálsmáli, fremst á ermum og neðst á treyju er brydding úr gylltri vírblúndu. Sídd: 53 cm
Stuttbuxurnar eru með vösum á sitthvorri hlið og tvo gyllta skrauthnappa neðst á hvorri skálminni (öðrum megin vantar hjálminn á skrauthnappinn). Buxurnar eru hnepptar í klofið með þremur smellum og einni tölu úr við. Í mittinu eru þrjár tölur, ein úr við og tvær úr því sem virðist vera bakelite plast. Á þremur öðrum stöðum í mittinu eru ummerki eftir tölur (á tveimur stöðum eru göt og á einum stað er lítið brot úr tölu saumað í efnið). Aftan á annarri skálminni er rifa í efninu. Sídd: 41 cm.
Upplýsingar frá gefanda:
Búningurinn var saumaður fyrir Alþingishátíðina 1930 og er úr dánarbúi Ólafs Breiðfjörð Finnbogasonar (f. 1918, d. 2010) og Kristjönu Jónsdóttur (f. 1920, d. 2020). Ólafur dansaði vikivaka í þessum búningi á Alþingishátíðinni 1930 ásamt systkinum sínum Guðrúnu Breiðfjörð (f. 1915, d. 2003), Valdimar Breiðfjörð (f. 1920, d. 1942), Sigurði Breiðfjörð (f. 1916, d. 1995) og Kristrúnu Breiðfjörð (f. 1917, d. 1986). Móðir þeirra, Jóhanna Kristjánsdóttir (f. 1882, d. 1973), húsmóðir frá Árgilsstöðum í Hvolshreppi, saumaði búningana. Faðir þeirra var Finnbogi Rútur Ólafsson (f. 1890, d. 1947) frá Múla í Gufudalshreppi.
Einnig fékk safnið til varðveislu orðu (Þjms.-2019-111-2) með merki Alþingishátíðarinnar sem Ólafur fékk í viðurkenningarskyni fyrir þátttöku í Alþingishátíðinni. Með gripunum fylgdu tvær ljósmyndir sem fóru í Ljósmyndasafn Íslands, ein sem sýnir systkinin í búningunum sínum og önnur sem sýnir stærri barnahóp í eins búningum.
Main information
Dating
1930
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2019-111-1
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
