Munsturmöppur VP 1-5

1947 - 1949
In preservation at
Reykjavík City Museum
Munsturmöppur Vigdísar nr.  I, II, III, IV, V. Nemendavinna úr Handavinnudeild Handíða- og myndlistaskólans 1947-1949. Munsturteikningar úr íslenskum og erlendum munsturblöðum og bókum veturinn 1947-1948. Kennari: Elsa E. Guðjónsson. Markmiðið var að safna sýnishornum af munstrum frá hinum ýmsum löndum með því að teikna þau upp úr blöðum og bókum. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.  Sjá yfirlit yfir innihald hér undir. Munsturmappa I. Innihald möppu Athugið: Númer á blaðsíðum er eingöngu á munstursíðum. Teikniáhöld: Blýantur, tússpenni, blekpenni og trélitir. 1. Forsíða: Teikningar. Dísa Páls. 2. Handskrifaður miði. Teikningar teknar úr ýmsum ísl. og erl. bókum og blöðum veturinn 1947-1948 hjá Elsu E. Guðjónsson. 3. Rúðumunstur frá Finnlandi, Rúmeníu og Eistlandi. 4. Rúðumunstur frá Rússlandi, Júgóslavíu og Svíþjóð. 5. Rúðumunstur frá Mexíkó, Íslandi og Júgóslavíu 19.- 20.öld. Tekkóslóvakíu og Ítalíu. 6. Munstur dregið upp á gegnsæjan teiknipappír. Munstur frá Persíu. 7. Skissa (teppi). 8. Rúðumunstur. Tveir hringir með dýramunstri innan í. 9. Munstur dregið upp á gegnsæjan teiknipappír. 10. Munstur frá Tyrklandi dregið upp á gegnsæjan teiknipappír. 11. Munstur dregið upp á gegnsæjan teiknipappír. Munstur frá Bokhara í Ástralíu. 12. Munsturbekkir dregnir upp á gegnsæjan pappír. 13. Fuglamunstur frá Perú dregið upp á gegnsæjan pappír. 14. Munstur dregið upp á gegnsæjan pappír. Sænskt munstur, bótabróderí. 15. Munstur dregið upp á gegnsæjan pappír. Óregluleg munsturheild / munsturbekkir. 16. Rúðumunstur. Kertastjaki, átta blaða rós o.fl. 17. Rúðumunstur. Nokkur jólamunstur. 18. Rúðumunstur. Jarðarber, tvær greinar. 19. Rúðumunstur. Fugl o.fl. 20. Rúðumunstur. Blómamunstur. 21. Einfaldar skissur. 22. Rúðumunstur. Blómabekkur. 23. Rúðumunstur. Kertastjaki og hluti af átta blaða rós. 24. Rúðumunstur. Skissur. 25. Rúðumunstur. Blómamunstur o.fl. 26. Rúðumunstur. Munsturbekkur í horn úr blaðinu Nordisk mönstertidene. 27. Rúðumunstur. Skissur. 28. Rúðumunstur. Ýmis smámunstur. 29. Rúðumunstur úr þýskri munsturbók. 30. Rúðumunstur. Íslensk munstur úr Þjóðminjasafni. 31. Rúðumunstur. Munsturbekkir. 32. Rúðumunstur. Munsturbekkir. Dýr. 33. Rúðumunstur. Fangamarkið VP o.fl. 34. Rúðumunstur. Dýrateikningar / barnamyndir. 35. Rúðumunstur. Dýrateikningar / barnamyndir. 36. Rúðumunstur. Munsturbekkur o.fl. 37. Teikningar. Barnamyndir / munstur fyrir smekki. Munsturmappa II. Innihald möppu Fjölbreyttar aðferðir í munsturgerð fyrir útsaum o.fl. Athugið: Númer á blaðsíðum er eingöngu á munstursíðum. 1. Klippimunstur. Brúnt á ljósum grunni. 2. Teikning. Langsum / þversum. 3. Klippimunstur. Ljóst á brúnum grunni. 4. Rúðumunstur. Fjögur munstur, fangamarkið VP. 5. Klippimunstur. Fölgrænt á gulleitum grunni. 6. Teikning af fuglum á gulleitum grunni. 7. Klippimunstur og rúðumunstur á hvítum grunni. 8. Klippimunstur. Dökk brúnt á brúnum grunni. 9. Klippimunstur. Ferkantaðir fletir á ljósum grunni. 10. Klippimunstur. Svart á ljósum grunni. 11. Teiknað / litað munstur á ljósum grunni. 12. Teiknað eftir klippimunstri, á teiknipappír. 13. Klippimunstur. Svart á ljósum grunni. 14. Klippimunstur. Svart á ljósum grunni. 15. Klippimunstur og handskrifaður texti, á ljósum grunni. 16. Klippimunstur. Svart á ljósum grunni. 17. Klippimunstur og handskrifaður texti, á ljósum grunni. 18. Litaðir ferningar sem mynda munstur. Kaldir litir á ljósum grunni. 19. Teikning. Mjúkar línur. Svart / hvítt á brúngulum grunni. 20. Teikning. Mjúkar línur. Heitir litir á ljósum grunni. 21. Hringlaga form. Vatnslitir á ljósum og dökkbrúnum grunni. 22. Tússteikning, línur, á ljósum og dökkbrúnum grunni. Tvö munstur. 23. Tússteikning, hringlaga form á bláleitum og dökkbrúnum grunni. 24. Tússteikning, línur. Tvö munstur. Hvítur og dökkbrúnn grunnur. 25. Munsturteikning með skrifstöfum. Fjögur munstur. Gulbrúnn grunnur. 26. Klippimunstur, brúnt. Og rúðumunstur í litum. Ljós grunnur. 27. Rúðumunstur, fuglar. Þrjú munstur. Gulbrúnn grunnur. 28. Rúðumunstur, blóm. Tvö munstur. Gulbrúnn grunnur. 29. Rúðumunstur. Átta smámunstur á gulbrúnum grunni. 30. Litahringur. 31. Rúðumunstur í lit. Þrjú munstur á ljósum grunni. 32. Rúðumunstur á millimetrapappír. Tvö munstur á ljósum grunni. 33. Rúðumunstur á millimetrapappír. Fimm munstur á ljósum grunni. 34. Rúðumunstur. Tvö munstur á ljósum grunni. 35. Rúðumunstur. Þrjú munstur á ljósum grunni. 36. Rúðumunstur og einfalt klippimunstur. Sex munstur á ljósum grunni. 37. Rúðumunstur og einfalt klippimunstur. Fimmtán munstur og fletir á ljósum grunni. 38. Rúðumunstur og einfalt klippimunstur. Tólf munstur og fletir á ljósum grunni. 39. Rúðumunstur, ferningar. Ljós grunnur. 40. Rúðumunstur. Tvö munstur í lit á ljósum grunni. 41. Rúðumunstur. Tvö munstur á rúðustrikaðan pappír og tvö munstur á millimetrapappír. Ljós grunnur. 42. Rúðumunstur. Fimmtán litlar munstureiningar í lit á gulbrúnum grunni. 43. Rúðumunstur. Fjögur munstur á gulbrúnum grunni. 44. Rúðumunstur í lit. Þrjú munstur á brúnum grunni. 45. Rúðumunstur í lit með fangamarkinu VP. Brúnn grunnur. 46. Rúðumunstur í lit. Tvö munstur á gulbrúnum grunni. 47. Rúðumunstur. Fléttumunstur teiknað á rúðupappír á gulbrúnum grunni. 48. Rúðumunstur í lit. Þrír blómabekkir í lit. Gulbrúnn grunnur. 49. Teiknað munstur í lit. Tígullaga form. Gulbrúnn grunnur. 50. Teiknað munstur í lit. Tígullaga form. Ljós grunnur. 51. Teiknað munstur í lit. Ljós grunnur. 52. Teiknað hringjamunstur í lit á ljósum grunni. 53. Teikning / skissa. Hringamunstur með blýanti. 54. Teiknað hringjamunstur í lit á ljósum grunni. 55. Teiknað hringjamunstur í lit. Óregluleg stærð og röðun hringja. Ljós og gulbrúnn grunnur. 56. Teiknað munstur í lit. Mjúkar línur og litlir hringir. Ljós grunnur. 57. Teiknað munstur á gegnsæjan teiknipappír (1/4 úr munstri). Gulbrúnn bakgrunnur. 58. Teiknað munstur, litur og blýantur. Ljós bakgrunnur. 59. Teiknaðir munsturbekkir í lit. Fjögur munstur á gulbrúnum grunni. 60. Teiknaðir munsturbekkir í lit. Fjögur munstur á gulbrúnum grunni. 61. Höfðaletur. Fimm stafir. Gulbrúnn grunnur. 62. Höfðaletur. Níu stafir. Gulbrúnn grunnur. 63. Höfðaletur. Átta stafir. Gulbrúnn grunnur. 64. Teiknaðar rúnir. Gulbrúnn grunnur. 65. Klippimunstur, jólatré. Ljós grunnur. 66. Teikning / skissa. 67. Klippimunstur, jólamunstur. Ljós grunnur. 68. Vatnslitaðir hringir. Litir: bláir og grænir á ljósum grunni. 69. Vatnslitað hringjamunstur og rendur. Heitir litir á ljósum grunni. 70. Samlokumunstur (klessumunstur). Tvö munstur á ljósum grunni. 71. Samlokumunstur (klessumunstur). Tvö munstur á ljósum grunni. 72. Samlokumunstur (klessumunstur). Tvö munstur á ljósum grunni. Munsturmappa III. Tilrauna- og þróunarvinna kennara, undirbúningur vegna kennslu í munsturgerð við Handavinnudeild KÍ frá 1964. Verkefnin í möppunni eru greinilega framhald af munsturmöppu II. Við drögum þá ályktun að hér sé um áframhaldandi þróun Vigdísar að ræða. Hún byrjaði að kenna munsturgerð við Handavinnudeild Kennaraskólans árið 1964 og benda verkefnin í möppunni til þess að þau séu undirbúningur hennar fyrir kennsluna. Skrásetjarar SB og SG voru nemendur Vigdísar í Handavinnudeild KÍ á árunum 1967-1969. Vigdís hafði mikil áhrif á viðhorf okkar til frjálsrar myndsköpunar og hugmyndavinnu innan textílgreinarinnar. Verkefnin í möppunni eru í þeim anda sem kennsla hennar byggðist á. Markmið hennar var að kalla fram sköpunarhæfileika nemenda í teikningu og munsturgerð og hvetja þá til að prófa nýja og óhefðbundna liti og litasamsetningar í útsaumi og annarri textílvinnu. Innihald möppu Fjölbreyttar aðferðir í munsturgerð fyrir útsaum og textílvinnu. Fléttumunstrin eru unnin útfrá munstrum sem koma fyrir í ýmsum eldri útsaumsverkum. 1 Klippimunstur. Ljósgrátt á hvítum grunni. 2 Klippimunstur. Ljósgrátt á hvítum grunni. 3 Klippimunstur. Fölblágrænt á svörtum grunni. 4 Klippimunstur. Fölgult á svörtum grunni. 5 Klippimunstur á svörtum renningi. Fölgult. 6 Klippimunstur. Fölgrátt á ljósum grunni. 7 Klippimunstur. Fölgrátt á ljósum grunni. 8 Klippimunstur. Ferningar, línur og hringur, fölgrátt á ljósum grunni. 9 Klippimunstur. Ferningar, línur og form, fölgrátt á ljósum grunni. 10 Klippimunstur með teiknuðum línum. Fölgrátt á ljósum grunni. 11 Klippimunstur. Ferningar og línur, fölgrátt á ljósum grunni. 12 Klippimunstur með teiknuðum línum. Hvítt á fölgráum grunni. 13 Klippimunstur og teiknaðar línur. Fölgrænt á fölgráum grunni. 14 Klippimunstur. Svört form með svörtum línum á fölgráum grunni. 15 Klippimunstur. Hvít form á ljósum grunni. 16 Klippimunstur. Ljósir þríhyrningar á fölgráum grunni. 17 Klippimunstur. Ljósir þríhyrningar á fölgráum grunni. 18 Klippimunstur. Ljósir þríhyrningar á fölgráum grunni. 19 Klippimunstur. Hvít form á fölgráum grunni. 20 Klippimunstur. Hvít form á fölgráum grunni. 21 Klippimunstur. Hvít form á fölgráum grunni. 22 Klippimunstur. Svört form á fölgráum grunni. 23 Klippimunstur. Hvít form á svörtum og ljósum grunni. 24 Klippimunstur. Hvít form á svörtum og ljósum grunni. 25 Klippimunstur. Hvít form á svörtum og fölgráum grunni. 26 Klippimunstur sem er útfært á rúðupappír / rúðumunstur á fölgráum grunni. 27 Teikning eftir klippimunstri. Teiknað með tússi á gráum grunni. 28 Klippimunstur. Ferningar og teiknaðar línur, svart á ljósum grunni. 29 Klippimunstur. Ferningslöguð form, ljósgrátt á ljósum grunni. 30 Klipptir hringir og teiknaðar línur með tússpenna. Svart á ljósum grunni. 31 Klippt ferningslaga form og teiknaðar línur með tússpenna. Svart á ljósum grunni. 32 Klippt ferningslaga form og teiknaðar línur með penna. Svart á drapplituðum grunni. 33 Klipptir hringir og teiknaðar línur með tússpenna. Svart á drapplituðum grunni. 34 Klipptir ferningar og teiknaðar línur með penna. Svart á ljósum grunni. 35 Blýantsteikningar / skissur. Mjúkar línur. 36 Blýantsteikningar / skissur. Mjúkar línur. 37 Blýantsteikningar / skissur. Ferningar. 38 Blýantsteikningar / skissur. Ferningar. 39 Blýantsteikningar / skissur. Ferningar. 40 Blýantsteikningar. Áferðapunktar / strik. 41 Rúðumunstur. Brúnn bakgrunnur. 42 Rúðumunstur. Brúnn bakgrunnur. 43 Rúðumunstur. Fjögur smámunstur á hvítum bakgrunni. 44 Rúðumunstur. Þrjú smámunstur, tvö af þeim í lit á ljósum bakgrunni. 45 Rúðumunstur. Fjögur smámunstur, grár bakgrunnur. 46 Rúðumunstur. Sex smámunstur á hvítum grunni. 47 Rúðumunstur. Sjö smámunstur á svörtum grunni. 48 Rúðumunstur á hvítum grunni. 49 Rúðumunstur í lit á hvítum grunni. 50 Blýantsteikningar / skissur. Hringlaga munstur á ljósum grunni. 51 Blýantsteikningar / skissur. Hringlaga munstur á ljósum grunni. 52 Tússteikningar. Hringlaga munstur á ljósum grunni. 53 Teikningar í lit. Hringlaga munstur á ljósum grunni. 54 Klippimunstur útfært í rúðumunstur. Munstrið litað, á hvítum grunni. 55 Tússteikning, útfærð eftir kolamunstri. Ljós grunnur. 56 Samanbrotin kolamunstur í plasthulstri. 57 Teikning á ljósum grunni. 58 Tússteikning. Fléttumunstur. 59 Tússteikning. Fléttumunstur. 60 Blýantsteikning. Fléttumunstur. 61 Blýantsteikning / skissa. Fléttumunstur. 62 Tússteikning. Fléttumunstur með trélit. 63 Tússteikning. Fléttumunstur. 64 Blýantsskissa. Fléttumunstur með tússi. 65 Blýantsteikning. Fléttumunstur. 66 Blýantsteikning. Fléttumunstur. 67 Tússteikning. Fléttumunstur. Munstrið er byggt á reitum. 68 Klippimunstur úr lituðum pappír. Rauðir hringir með fjólubláum bogum á ljósum grunni 69 Klippimunstur úr lituðum pappír. Þríhyrningar og hringir. Litir: Grænir og bláir á ljósum grunni. 70 Klippimunstur úr lituðum pappír. Ferningar og hálfhringir. Heitir litir á ljósum grunni. 71 Klippimunstur úr lituðum pappír. Blómamunstur byggt á þríhyrningum og hringjum. Litir: Dökkblátt, fjólublátt og grænt á ljósum grunni. 72 Klippimunstur úr lituðum pappír. Þríhyrningar, hringir, ferningar. Litir: Blátt og grænt á ljósum grunni. 73 Klippimunstur úr lituðum pappír. Grænblá form á ljósum grunni. 74 Klippimunstur úr lituðum pappír. Hringir og hálfhringir. Litir: Dökkblátt og grænblátt á ljósum grunni. 75 Klippimunstur úr lituðum pappír. Þríhyrningar og hringir. Litir: Appelsínugult og dökkblátt á ljósum grunni. 76 Klippimunstur úr lituðum pappír. Hringir, hálfhringir o.fl. form. Litir: Grænt, grænblátt og dökkblátt á ljósum grunni. 77 Klippimunstur úr lituðum pappír. Þríhyrningar og hringir. Litir: Rautt, appelsínugult og dökkfjólublátt á ljósum grunni. 78 Klippimunstur úr lituðum pappír. Hringir o.fl. Litir: Dökkgrænt og dökkfjólublátt. Ljós grunnur. 79 Klippimunstur úr lituðum pappír. Ferningar, hringir o.fl. Litir: Dökkblátt og grænblátt á ljósum grunni. 80 Klippimunstur úr lituðum pappír. Hringir o.fl. Litir: Ljósgrænt og dökkblátt á hvítum grunni. 81 Klippimunstur úr lituðum pappír. Þríhyrningar, hringir og hálfhringir. Litir: Dökkblátt og grænblátt á ljósum grunni. 82 Klippimunstur úr lituðum pappír. Hringir. Litir: Dökkblátt, grænblátt og ljósgrænt á ljósum grunni. 83 Klippimunstur úr lituðum pappír. Hringir, ferningar og þríhyrningar. Litir: Dökkblátt og grænblátt á ljósum grunni. 84 Klippimunstur úr lituðum pappír. Ferningar og hálfhringir. Litir: Dökkgrænt og dökkfjólublátt á ljósum grunni. 85 Klippimunstur úr lituðum pappír. Ljósbrún klippimunstur á ljósum grunni. 86 Mjór renningur. Klippimunstur úr lituðum pappír. Ljósgænt á ljósum grunni. 87 Klippimunstur úr lituðum pappír. Mjór renningur. Appelsínugult á ljósum grunni. 88 Klippimunstur úr lituðum pappír. Appelsínugult á hvítum grunni. 89 Klippimunstur úr lituðum pappír. Appelsínugult á ljósum grunni. 90 Pappír rifinn í munstur. Litir: Dökkblátt, ljósblátt og ljósgrænt á ljósum grunni. 91 Pappír rifinn í munstur. Litir: Dökkblátt, ljósblátt og ljósgrænt á ljósum grunni. 92 Klippimunstur úr lituðum pappír. Fuglamunstur. Ljósgrænt á ljósum grunni. 93 Klippimunstur úr lituðum pappír. Dökkgrænt og ljósgrænt á ljósum grunni. 94 Klippimunstur úr lituðum pappír. Fölgult og rautt á appelsínugulum grunni, og dökk rautt með appelsínugulum pappír ofan á. Ljós grunnur. 95 Klippimunstur úr lituðum pappír. Appelsínugult og dökkrautt á ljósum grunni. 96 Lítill pappírsbútur. Klippimunstur úr lituðum pappír, á litlum svörtum grunni. Litur: Ljósgult. 97 Klippimunstur úr lituðum pappír á ljósum pappírsrenningi. Litur: Rauður. 98 Klippimunstur úr lituðum pappír á svörtum pappírsrenningi. Þríhyrningar, ferningur og hringur. Litir: Dökkblátt, dökkgrænt, dökkfjólublátt og blágrænt á svörtum grunni. 99 Klippimunstur úr lituðum pappír. Bláir renningar sem mynda munsturheild á ljósum grunni. Munsturgerð út frá myndefni í tímaritum. Valið myndefni, klipptir hlutar úr myndum 100 Klippimunstur úr lituðum pappír. Munstrið er klippt úr tímaritum (línur og ferningar). 101 Tveir myndfletir. Litir: Drapplitað og brúnleitt á ljósum grunni. 102 Tveir myndfletir. Svart og hvítt á ljósum grunni. 103 Tveir myndfletir í lit á ljósum grunni. 104 Þrír myndfletir í lit á ljósum grunni. 105 Þrír myndfletir í lit og tveir svart / hvítir. Hvítur grunnur. 106 Myndverk úr klipptum og rifnum pappír í lit. 107 Myndverk úr klipptum og rifnum pappír. Ljós grunnur. 108 Myndverk. Heil mynd í bakgrunni. Klippt form lögð ofan á. Margir litir. 109 Myndverk byggt á misstórum ferningum. Brúnt og drapplitað á ljósum grunni. 110 Myndverk. Heil mynd í bakgrunni, klipptar ræmur lagðar ofan á. Margir litir. 111 Handskrifaðir minnispunktar og litaspjald (3 stk.). 112 Munstur af ofnu veggteppi. Litaval og leiðbeiningar um vefnaðaraðferðir. Vinnuferlið við veggteppið er lýsandi dæmi um skapandi hugsun í textílvinnu. Galdrastafir dregnir upp á teiknipappír 113 – 118 Galdrastafir. 119 Teikniskissur. Ferningi skipt niður í fleti. 120 Höndin notuð til að skipta niður myndfleti. Munsturmappa IV. Tilrauna- og þróunarvinna kennara, samhliða kennslu í munsturgerð við handavinnudeild KÍ frá 1964. Eins og með fyrri möppur Vigdísar í munsturgerð, I, II, og III eru verkefnin í þessari möppu greinilega framhald af þeim. Við drögum þá ályktun að hér sé um áframhaldandi þróun Vigdísar að ræða. Hún byrjaði að kenna munsturgerð við Kennaraskólann árið 1964. Verkefnin í möppunni benda til þess að þau séu undirbúningur Vigdísar fyrir kennsluna og jafnframt tilrauna- og þróunarvinna hennar samhliða kennslu. Skrásetjarar (SB og SG) voru nemendur Vigdísar á árunum 1967-1969. Hún hafði mikil áhrif á okkur varðandi hugmyndavinnu innan textílgreinarinnar. Verkefnin í möppunni eru í þeim anda sem kennsla hennar byggðist á. Markmið hennar var að kalla fram sköpunarhæfileika nemenda og hvetja þá til að prófa nýjar leiðir í munsturgerð, útsaumi og annarri textílvinnu. Innihald möppu Fjölbreyttar aðferðir í munsturgerð fyrir útsaum og aðra textílvinnu. Athugið: Númer á blaðsíðum er eingöngu á munstursíðum. 1. Teikning af jurt. Lotsveifgras. Blekteikning og vatnslitur. 2. Jurt, blekteikning. 3. Teikning af jurt. Sauðlaukur. Blekteikning og vatnslitur. 4. Teikning af jurt. Blekteikning. 5. Stílfærð teikning af jurt á rúðustrikaðan pappír. Blekteikning. 6. Stílfærð teikning af jurt. Blekteikning, brúnt. 7. Stílfærð teikning af jurt. Blekteikning, brúnt. 8. Stílfærð teikning af jurt. Blekteikning, brúnt. 9. Stílfærð teikning af jurt. Blekteikning. 10. Teikning af jurt. Sóldögg. Blekteikning og vatnslitur. 11. Stílfærð teikning af Sóldögg. Blekteikning. 12. Stílfærð teikning af jurt (Sóldögg?). Blekteikning. 13. Teikningar af jurtum. Sýkigras og Tjarnastör. Blekteikningar. (Stílfært?). 14. Blekteikning. Hugmyndavinna út frá jurtum. 15. Blekteikning. Hugmyndavinna út frá jurtum. 16. Blekteikningar. Hugmyndavinna út frá jurtum. Munstur ætlað í balderingu á upphlut. 17. Blekteikningar. Hugmyndavinna út frá jurtum. Munstur ætlað í balderingu á upphlut. 18. Blekteikningar. Hugmyndavinna út frá jurtum. Munstur ætlað í balderingu á upphlut. 19. Laufblaðamunstur. Blekteikning og vatnslitur. 20. Laufblaðamunstur. Blekteikning og vatnslitur. 21. Laufblaðamunstur. Blýantsteikning / skissa. 22. Stílfærð teikning af eplum. Blekteikning. 23. Stílfærð teikning af laukum. Blekteikning. 24. Stílfærð teikning af laufblöðum. Blekteikning. 25. Laufblaðamunstur. Blekteikning. 26. Laufblaðamunstur. Blekteikning. 27. Bogadregnar línur á rúðustrikaðan pappír. Blýantsteikning og þekjulitur. 28. Blýantsteikning / blekteikning af jurt. Stílfærð. 29. Munsturbekkir. Fínleg munstur teiknuð með blýanti. 30. Munsturbekkir. Fínleg munstur teiknuð með blýanti. 31. Fínlegar munsturlínur sem mynda stórt munsturform. Blekteikning. 32. Fínleg blóm sem mynda stórt munsturform. Blekteikning. 33. Stílfærð munsturteikning af jurt. Blekteikning. 34. Stílfærð munsturteikning af jurt. Blekteikning. 35. Munsturskissa. Blýantsteikning. 36. Klippimunstur byggt á misbreiðum pappírsrenningum í lit og munstur teiknað með blekpenna. 37. Klippimunstur byggt á misbreiðum pappírsrenningum í lit og munstur teiknað með blekpenna. 38. Klippimunstur. Mjóir pappírsrenningar (gulllitað og svart). 39. Tússteikning. Stílfærð jurt. 40. Tússteikning / blekteikning (rautt). Stílfært blóm. 41. Tvö smámunstur. Gætu verið dúkamunstur. Tússteikning / blekteiknin. 42. Teikning. Stórt blóm. Blýantur og vaxliti. 43. Blekteikning. Mjúkar, misbreiðar línur. 44. Blekteikning. Mjúkar, misbreiðar bogalínur. 45. Teikning af blýöntum. Blýantur og blek. 46. Blekteikning. Tvær brauðsneiðar með osti. 47. Blekteikning. Fiðrildavængur. 48. Blýantsteikningar / skissur. Stílfærð fiðrildi. 49. Blýantsteikning / blekteikning. Stílfærðir fiðrildavængir. 50. Blekteikning. Þrjú lítil fiðrildi. 51. Blekteikning. Fiðrildamunstur. 52. Blýantsteikning / blekteikning. Fljúgandi fræ. 53. Stílfært fiðrildamunstur. Blýantsteikning / blekteikning. 54. Blýantsteikning / blekteikning. Stílfært munstur beinamunstur. 55. Blýantsteikning / blekteikning. Stílfært munstur beinamunstur (fótspor). 56. Blekteikning. Beinar línur sem víxlast óreglulega. Munstur inn í einstaka reitum. Nokkrir fylltir fletir og smástrik. 57. Blekteikning. Beinar línur sem víxlast óreglulega. Munstur inn í einstaka reitum. Nokkrir fylltir fletir. 58. Blekteikning. Beinar línur sem víxlast óreglulega. Kúlur á endum. Munstur inn í einstaka reitum. Nokkrir fylltir fletir og ýmis munstur. 59. Blekteikning. Beinar línur sem víxlast óreglulega. Smáhringir og kúlur á endum. Munstur inn í einstaka reitum. Línur og fylltir fletir. 60. Blekteikning. Beinar línur sem víxlast óreglulega. Nokkrar gerðir af munstrum inn í einstaka reitum. 61. Blekteikning. Beinar línur sem víxlast óreglulega. Munstur inn í einstaka reitum. Línur og fylltir fletir í rauðu og bláu. 62. Línur. Lárétt, lóðrétt og á ská. Munstur inn í einstaka reitum. Línur og fylltir fletir með svörtum, gulum og bláum litum. 63. Blekteikning. Beinar línur í samhverfu. Beinar línur sem víxlast óreglulega teiknaðar á ¼ af fletinum. Munstrið er brotið þannig að það myndi samhverfu. 64. Blýantsteikning. Snúningsmunstur. Teiknað er á ¼ af fletinum. Munstrið er síðan endurtekið þannig að því er snúið um ¼ fyrri hvern flöt. 65. Klippimunstur. Myndfletinum er skipt niður í nokkrar einingar / fleti. Lituðum pappír raðað á fletina til að búa til munstureiningu. Sýndir eru tveir möguleikar í uppröðun á einingunni. a) hver á eftir annarri í láréttri röð, b) samhverfa. 66. Myndfletinum er skipt niður með beinum línum. Láréttar, lóðréttar og á ská. Málað er í fletina með nokkrum litum. 67. Blýantsteikning / blekteikning. Beinar og ávalar línur. 68. Blýantsteikning / blekteikning. Beinar og ávalar línur. 69. Blýantsteikning / blekteikning. Beinar og ávalar línur. 70. Blýantsteikning / blekteikning. Beinar og ávalar línur. 71. Blekteikning. Einfaldur munsturbekkur. Láréttar og lóðréttar línur sem mynda tengimunstur. 72. Blekteikning. Einfaldur munsturbekkur. Láréttar og lóðréttar línur. 73. Blekteikning. Hluti af teikningunni / myndfletinum er dreginn fram og nýttur sem munstur / munstureining. Einingin lituð í nokkrum litum. 74. Blýantsteikning. Unnið með munstureininguna frá bls. 73. 75. Blýantsteikning. Hluti af teikningunni / myndfletinum er dreginn fram og nýttur sem munstur / munstureining. Einingin lituð í nokkrum litum. 76. Blýantsteikning og blekteikning. Unnið með munstureininguna frá bls. 75. 77. Kolateikning. Láréttir munsturbekkir sem mynda munsturheild. 78. Kolateikning. Láréttir munsturbekkir sem mynda munsturheild. 79. Fljótandi túss látið leka um myndflötinn til að búa til / mynda form. 80. Málað með fljótandi tússi. 81. Litahringir. 82. Litafræði. 83. Litafræði. 84. Litafræði. Tveir gráir fletir. Annar á rauðum grunni en hinn á grænum. 85. Litafræði. Dökk rauðir fletir, annar á grænum grunni en hinn á rauðum grunni. 86. Litafræði. Tveir litir. Föl grár og föl gulur. 87. Litafræði. Tveir rauðir fletir. Annar á svörtum grunni en hinn á ljósum grunni. 88. Litafræði. Tveir litlir litafletir á svörtum grunni. Annar rauður en hinn blár. 89. Hvítt X á svörtum grunni. Munsturmappa V. - Útsaumur. Munsturgerð Tilrauna- og þróunarvinna kennara, undirbúningur fyrir kennslu í útsaumi við handavinnudeild KÍ frá árinu 1964. Útsaumur og munsturgerð. Verkefnin í möppunni eru greinilega framhald af fyrri verkefnum í munsturgerð og útsaumi. Við drögum þá ályktun að hér sé um áframhaldandi þróun Vigdísar að ræða eftir að hún lýkur námi. Hún byrjaði að kenna munsturgerð við Kennaraskólann árið 1964. Verkefnin benda til þess að þau séu undirbúningur hennar fyrir kennsluna og jafnframt tilrauna- og þróunarvinna samhliða kennslu. Við teljum ekki ólíklegt að einstök verkefni hafi verið unnin á námskeiði. Skrásetjarar SB og SG voru nemendur Vigdísar í Handavinnudeild KÍ á árunum 1967-1969. Einstaka verkefni svipar til þeirra efnisþátta sem hún kynnti fyrir okkur. Innihald möppu Verkleg sýnishorn, munsturteikningar og skriflegar leiðbeiningar. Innihald möppu talið upp í sömu röð og er í möppunni . 1. Ýmis spor I. Útsaumslínurnar eru yfirleitt hálfsaumaðar svo hægt sé að sjá hvernig saumsporin eru saumuð. 2. Upptalning á heiti saumsporanna á síðu 1. 3. Ýmis spor II. Útsaumslínurnar eru yfirleitt hálfsaumaðar svo hægt sé að sjá hvernig saumsporin eru saumuð. 4. Upptalning á heiti saumsporanna á síðu 3. 5. Tyllsaumur (tjullsaumur). Tvær prufur. 6. Skriflegar leiðbeiningar. Tjullsaumur. Sýnishornin. Skírnarkjóll. 7. Pellsaumur / Petit Point. Verklegt sýnishorn. 8. Útsaumaðar bogalínur. Fjórar línur. 9. Útsaumaðar bogalínur. Þrjár línur. 10. Horn. Horn saumað á réttu (skáhorn). Beint horn og skáhorn úr pappír (ómerkt). 11. Horn. Aðferð I, dönsk. Aðferð II, sænsk. Fjórar prufur. 12. Skriflegar leiðbeiningar og vinnuteikningar. Gatafaldur með skáhorni. 13. Handskrifaðar leiðbeiningar. Skáhorn. 14. Horn. Útsaumsbekkur eftir rúðumunstri. Gatafaldur. 15. Klippimunstur útfærð í rúðumunstur. 16. Faldar, tvær prufur. Prufa I. Þrjár aðferðir með ferningsspori. Prufa II. Afturstingur og varpað yfir þræði. 17. Ein prufa. Gengið frá faldi. Ferningsspor og afturstingur (farið oftar í sama sporið). 18. Skuggasaumur. Blómamunstur. 19. Harðangur og klaustursaumur með augnspori og tunguspori. 20. Raksaumur, frjáls útfærsla, hringform (ómerkt). Nokkur útsaumsspor utan um hringinn. Hörefni og hörgarn. 21. Útsaumur, frjáls útfærsla. Munstur, fjórir misstórir hringir. Hörefni og hörgarn. 22. Útsaumur. Þrjú hringform. Saumað í gardínuefni (ull). 23. Munsturgerð, hringform teiknuð með blýanti. 24. Munsturgerð. Unnið með klippt munsturform. Teiknað með tússpenna. 25. Útsaumur. Unnið með óregluleg munsturform. Efni: Flíselín, millifóður og fínn perlujafi. Ýmiss útsaumsspor. 26. Munsturgerð. Unnið með klippt munsturform úr ýmsum efnisgerðum. Efni: Flíselín, millifóður og fínn perlujafi. 27. Útsaumur. Unnið með klippt munsturform, þríhyrninga. Efni: Flíselín, millifóður og fínn perlujafi. Ýmiss útsaumsspor. 28. Munsturgerð. Teiknað útfrá miðjumunstri. 29. Búið er að draga fram / velja hluta af munstrinu og stílfæra. 30. Útsaumur útfrá munstrinu hér á undan (svartur grunnur). 31. Útsaumur útfrá sama munstri (grænn grunnur). Breytt útfærsla í útsaumnum. 32. Munsturgerð. Teiknað út frá miðjumunstri. Hópverkefni. Þrjár útfærsur fylgja. 33. Útsaumur útfrá hópverkefninu á undan. Unnið með eina af þremur útfærslum. Saumað á brúnan grunn. 34. Munstrið sem myndin var saumuð eftir hér á undan. 35. Munsturgerð. Teiknað útfrá miðjumunstri. Búið er að draga fram / velja hluta af munstrinu og stílfæra (á öðru blaði). 36. Munstrið hér á undan áteiknað með hvítum lit (kalkípappír) á dökk grænt bómullarefni. 37. Munsturgerð. Teiknað út frá miðjumunstri. Munsturmappa VI. Efnisfræði. Nemendavinna úr handavinnudeild Handíða- og myndlistaskólans 1947-1949. Einnig önnur vinna, að öllum líkindum eftir kennarapróf. Efnisfræði. Verkefnin eru að stærstum hluta unnin í kennaranáminu. Aftar í möppunni eru nokkur yngri verkefni og drögum við þá ályktun útfrá vefjarefnum, pappír og skriflegum gögnum að þau hafi verið unnin eftir að Vigdís lauk kennaraprófi. Mappan skiptist í fyrri- og seinni hluta. Innihald möppu Skrifleg gögn (vélrituð) ásamt sýnishornum af vefjarefnum, þráðum, jurtum, efnisprufum og handskrifuðum glósum. Innihald möppu talið upp í sömu röð og er í möppunni. Textinn er bæði vélritaður og handskrifaður. Vigdís var komin langt með að vélrita eigin glósur því handgerðar teikningar falla vel inn í textann. Athugið: Í gögnunum er efnistegundin rayon ýmist skrifuð reyon eða rayon. Fyrri hluti Forsíða. Vinnubók. Efnisfræði. Vigdís Pálsdóttir. 1. Handskrifaðar glósur með skýringarteikningum. Vinnsluferli ullarinnar fyrir sölu. 2. Ull. Texti og lítil skýringarteikning. 3. Fjárrækt. 4. Fágætar ullartegundir. 5. Framhald af síðu 4. 6. Ullarefni. Nafnalisti. 7. Framhald af síðu 6. 8. Framhald af síðu 7. 9. Prufur fyrir ull. 10. Um vefnaðargerðir. I Einskefta. Lítil skýringarteikning. 11. Brekánsvend. II Vaðmál. Fjórar litlar skýringarteikningar. 12. Framhald af síðu 11. III Ormeldúkur (neðarlega á síðu). Þrjár skýringarteikningar. 13. Framhald af síðu 12. Netvefnaður (neðarlega á síðu). 14. Lítil vefnaðarprufa með sjö vefnaðargerðum. 15. Jacquardvefnaður. 16. Prjónaefni. 17. Framhald af síðu 16. Tvær litlar skýringarmyndir. 18. Gerviefni. Reyon (rayon). 19. Framhald af síðu 18. Viskosa-reyon. 20. Acetat-reyon. Kopar-reyon. Einkenni reyon. 21. Framhald af síðu 20. Reyonstubbþræðir (reyontrefjur / -trefjar). 22. Teikning af spunavél fyrir gerviefni. Bakhlið. Teikning af spunavörtu. 23. Rannsóknir á reyon. Meðferð reyonefna. 24. Framhald af síðu 23. Reyontrefjar. 25. Reyonefni (upptalning á efnistegundum). 26. Framhald af síðu 25. 27. Nylon (nælon). 28. Framhald af síðu 27. 29. Kaseinefni (Lanitat, e. Aralac). 30. Glerefni. 31. Framhald af síðu 30. 32. Silki. 33. Framhald af síðu 32. Silkivinnsla. Handskrifaðar síður bls. 34-39 og 41-52 34. Silki. Framhald af vélritaða textanum á bls. 33. Einkenni. 35. Framhald af síðu 34. Prófun á silki og meðferð silkiefna. 36. Hör. 37. Framhald af síðu 36. 38. Framhald af síðu 37. Prófun á hör. 39. Framhald af síðu 38. Meðferð hörefna. 40. Vélritað blað. Bómull. Hér er búið að skrá eina síðu eftir handskrifuðum texta. Sjá næstu síðu. 41. Bómull. 42. Framhald af síðu 41. Framleiðslan. 43. Framhald af síðu 42. Einkenni. 44. Framhald af síðu 43. Bómullartegundir. 45. Framhald af síðu 44. Vinnsla. 46. Framhald af síðu 45. 47. Framhald af síðu 46. Prófun á bómull. Meðferð bómullarefna. Lítil skýringarteikning. 48. Framhald af síðu 47. 49. Listi yfir bómullarefni. 50. Framhald af síðu 49. 51. Framhald af síðu 50. 52. Framhald af síðu 51. 53. Trefjur ýmsra vefjarefna. Teikningar af þráðum / trefjum. 54. Hör. Hörtrefjar / þræðir. Lítil efnisprufa. Seinni hluti 55. Baðmull. 56. Framhald af síðu 55. 57. Hör. 58. Silki. 59. Framhald af síðu 58. 60. Íslensk ull. Garn- og efnisprufur. 61. Hör. Garn- og efnisprufur. 62. Bómullarefni. Garn- og efnisprufur. 63. Litað með fíflablöðum. 64. Litað með fjallagrösum. 65. Litað með hýði af lauk. 66. Litað úr njóla. 67. Trefjar / þræðir. Fram- og bakhlið. Merkt Þórdís II-C á bakhlið. Líklegt er að verkefnið sé nemendavinna úr kennaranáminu.

Main information

Title
Proper noun: Munsturmöppur VP 1-5
Dating
1947 - 1949
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-34-9
Place
Staður: Myndlista- og handíðaskóli Íslands, Skipholt 1, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Munsturbók
Keyword:
Skólahandavinna

Place of origin

64°8'29.0"N 21°54'37.4"W