Húfa, sem höfuðfat

29.08.1892
Á myndinni eru Magnús Guðjón Haraldsson (1867–1895) og Kristján Torfason (1871–1932). Kristján Torfason, fæddur 12. janúar 1871 á Flateyri í Önundarfirði, var sonur Torfa Halldórssonar, verslunarstjóra á Flateyri, og Maríu Össurardóttur. Kristján bjó síðar lengi á Sólbakka. Kristján hrinti ýmsum stórum verkefnum í framkvæmd, en gerði áætlanir um enn stærri, en sem dæmi má nefna að hann rak surtarbrandsnámu í landi Botns í Súgandafirði og lagði á ráðin um járnvinnslu í Önundarfirði. Magnús Guðjón Haraldsson, fæddur þann 29. júlí 1867 á Suðureyri í Tálknafirði, var sonur Haraldar Ásgeirsen, síðar verslunarmanns á Ísafirði, og Sigríðar Markúsdóttur. Í dagbók Björns Pálssonar er hann nefndur Guðjón Ásgeirsson, og hann virðist jafnan hafa gengið undir nafninu Guðjón H. Ásgeirsen í samtímaheimildum, þó skírnarnafnið sé notað í manntölum. Báðir þessir menn létust á sjó: Guðjón Ásgeirsen drukknaði í Sundunum, milli Skutulsfjarðareyrar og Kirkjubólshlíðar, þann 5. september 1895, en Kristján Torfason varð bráðkvaddur um borð í Gullfossi rétt um það leyti sem skipið lagðist að bryggju á Flateyri, þann 28. september 1932.

Main information

Dating
29.08.1892
Object-related numbers
Museumnumber a: BP-1892-440
Place
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Record type
Collection
Undirskrá: Björn Pálsson ljósmyndari
Classification
Keywords
Depiction: Húfa, sem höfuðfat
Depiction:
Jakkaföt
Depiction:
Maður
Depiction:
Slaufa
References
Skrá Björns Pálssonar, 1891-1916. Eyjólfur Jónsson. Vestfirzkir slysadagar: 1880–1940. Fyrra bindi. Ísafjörður: Sögufélag Ísfirðinga, 1996. Guðm. G. Bárðarson. „Um surtarbrand“. Andvari, e.d. „Ministerialbók Holts og Kirkjubóls sókna í Önundarfirði 1849–1897“, e.d. Holt í Önundarfirði - prestakall 0000 BA/5-1. ÞÍ. „Ministerialbók Selárdals 1816–1872“, e.d. Selárdalur í Arnarfirði - prestakall 0000 BA/3-1. ÞÍ. Snorri Sigfússon. „Torfahúsið á Flateyri“. Lesbók Morgunblaðsins. 27. september 1942. „Um daginn og veginn“. Alþýðublaðið, 29. september 1932.