Laufabrauðsgerð

04.12.2020
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Dating
Day sent: 04.12.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-3-140
Questions / Answers
Gerði fjölskylda þín laufabrauð á æskuárum þínum? Ef svo er, hverjir á heimilinu tóku þátt? Komu aðrir að laufabrauðsgerðinni en heimilisfólkið? Hverjir, ef svo er?
Öll fjölskyldan tók þátt að öllu leiti og stórfjölskyldan kom saman. Systkini afa míns komu 3 sinnum saman í desember til að gera laufabrauð hjá hverju og einu. Allir tóku þátt börn sem gamalmenni.

Fór laufabrauðsgerð sem þú tókst þátt í eingöngu fram á heimili þínu eða á fleiri stöðum? Hvaða stöðum?
Laufabrauð var gert á öllum bæjum og fór fólk til að hjálpast að. Systkini afa gerðu laufabrauð á 3 heimilum og mættu allra leggur hvers og eins í hvert hús til að hjálpast að.

Hvar og hvernig kynntust foreldrar þínir þessari hefð? Nefndu einnig sveitarfélag og hvort það var í þéttbýli eða til sveita.
Móðir mín kynntist þessu í Mývatnssveit. Þar var bara strjálbýli.

Var laufabrauðið sem þú þekktir í æsku svipað því sem kallað er laufabrauð í dag? Ef ekki, gætir þú lýst brauðinu sem kallað var laufabrauð í þínu ungdæmi?
Já alveg eins enda sama uppskrift.

Býrð þú til laufabrauð í dag? Gerir þú það með fleiri en einum hópi, ef svo er? Hvaða hópum?
Já ég bý til laufabrauð og býð vinum, ættingjum og saumaklúbbnum að koma og gera daginn hátíðlegan. Til að fá sömu stemmningu og í æsku.

Kemur þú að gerð laufabrauðs á hverju ári eða hefur þú hugsanlega tekið pásu um lengri eða skemmri tíma? Hvers vegna?
Laufabrauð er bara eins og hangikjöt á jólunum og það er gert á hverjum jólum.

Er sérstakur dagur og tími tekinn frá fyrir laufabrauðið? Hvernig er hann valinn? Er gert laufabrauð á öðrum tímum árs en fyrir jólin? Ef svo er, hvenær og við hvaða tækifæri?
Tekinn frá dagur á hverju ári til laufabrauðsgerð ár. Hins vegar er það ekkert alltaf sami dagurinn. Þetta þarf að gera til að sem flestir komist. En nei það er ekki gert á öðrum tímum.

Hvaða hugmyndir hefur þú um útbreiðslu laufabrauðs í dag? Finnst þér að hún hafi farið vaxandi eða minnkandi á síðustu 20-30 árum eða stendur hún kannski í stað?
Það þekkja fleiri laufabrauð í dag en nenna hins vegar ekki eða treysta sér ekki í ferðina og kaupa því frekar lítið af brauðinu og það er dýrt. Hér áður fyrr var verið að skera 300 kökur fyrir jólin og laufabrauð var bara svona eins og snakk. Enda mjög gott að salta yfir geirana og borða sem snakk.

Hvaða áhrif hefur COVID-19 á laufabrauðsgerð þína? Koma vídeó-símtöl á netinu, eins og t.d. á Facebook, hugsanlega við sögu? Getur þú sagt frá þessu, ef svo er?
Það var ekki gert nema mjög lítið magn af laufabrauði. 40 kökur eða svo vegna samkomubanns.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Laufabrauðsgerð
Keyword:
Laufabrauð