Main information
Gender / Year of Submittee
Karl (1952)
Dating
Day sent: 04.12.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-3-88
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg, Reykjavíkurborg
Questions / Answers
Gerði fjölskylda þín laufabrauð á æskuárum þínum? Ef svo er, hverjir á heimilinu tóku þátt? Komu aðrir að laufabrauðsgerðinni en heimilisfólkið? Hverjir, ef svo er?
Ég vandist því sem barn á Selfossi að laufa brauð var gert frá grunni hnoðað, flatt og steikt. Móðir mín og vinkonur hennar, móður amma mín og móðursystir komu stundum frá Reykjavík til að taka þátt. Allit tóku þátt í skurðinum en konurnar hnoðuðu og flöttu og faðir minn flatti stundum ef hann var heima síðan steiktu konurnar.
Fór laufabrauðsgerð sem þú tókst þátt í eingöngu fram á heimili þínu eða á fleiri stöðum? Hvaða stöðum?
Í æsku var þetta á heimili foreldra minna. Ég fluttist á höfuðborgarsvæðið en foreldrar mínir fluttust austur á Klaustur. Einhverntíma skömmu eftir þetta fórum við að skera og steikja laufabrauð með móðursystur minni sem bjó líka í Reykjavík og fljótlega fórum við að steikja sjálf með systur minni og höfum gert síðan en við höfum alltaf keypt flattar kökur.
Hvar og hvernig kynntust foreldrar þínir þessari hefð? Nefndu einnig sveitarfélag og hvort það var í þéttbýli eða til sveita.
Móður amma mín var úr sveit í Eyjafirði.
Var laufabrauðið sem þú þekktir í æsku svipað því sem kallað er laufabrauð í dag? Ef ekki, gætir þú lýst brauðinu sem kallað var laufabrauð í þínu ungdæmi?
Ekki man ég það en í æsku skárum við munstrið með hnífum en í dag notum við "laufabrauðsjárn".
Ef að þú komst ekki að gerð laufabrauðs í æsku en tókst þátt í henni seinna á ævinni, hvaðan og hvenær kom hún inn í líf þitt?
Vandist því í æsku.
Býrð þú til laufabrauð í dag? Gerir þú það með fleiri en einum hópi, ef svo er? Hvaða hópum?
Kaupum kökurnar og skerum og steikjum. Fjölskylda mín og systur minnar, mismargir hverju sinni en yfirleitt 6-8 manns stundum fleirri.
Kemur þú að gerð laufabrauðs á hverju ári eða hefur þú hugsanlega tekið pásu um lengri eða skemmri tíma? Hvers vegna?
Hverju ári.
Er sérstakur dagur og tími tekinn frá fyrir laufabrauðið? Hvernig er hann valinn? Er gert laufabrauð á öðrum tímum árs en fyrir jólin? Ef svo er, hvenær og við hvaða tækifæri?
Dagurinn er ákveðinn með góðum fyrirvara til að allir geti hliðrað til fyrir eftirmiðdegi á laugardegi eða sunnudegi á aðventunnni.
Hvaða hugmyndir hefur þú um útbreiðslu laufabrauðs í dag? Finnst þér að hún hafi farið vaxandi eða minnkandi á síðustu 20-30 árum eða stendur hún kannski í stað?
Geri mér ekki grein fyrir því en ég hef ekki hitt ástríðufullt laufabrauðsfólk lengi.
Hvaða áhrif hefur COVID-19 á laufabrauðsgerð þína? Koma vídeó-símtöl á netinu, eins og t.d. á Facebook, hugsanlega við sögu? Getur þú sagt frá þessu, ef svo er?
Nú vorum við fáliðuð þ.e. Við tvö systir mín og mágur og sonur okkar og tengdadóttir.
Eru einhverjir sem halda utan um daginn eða sjá til þess að nóg sé af öllum áhöldum og öðru sem til þarf? Hverjir, ef svo er?
Við hjónin gerum það.
Búið þið til deig sjálf eða kaupið þið það tilbúið og fletjið út? Kaupið þið útflattar kökur?
Kaupum.
Hvaða áhöld og annan útbúnað notar þú við laufabrauðsskurðinn? Segðu frá því og hvaða hlutverki þau gegna.
Laufabrauðsjárn af tveimur stærðum er mest notað til að skera og litlir hnífar til að flétta.
Eiga eldri áhöldin sér sögu? Hafa einhver þeirra t.d. erfst á milli kynslóða? Hvaða áhöld, ef svo er? Hver átti þau fyrst?
Laufabrauðið er steikt í sama potti og móðir mín notaði. Annað hefur ekki unnið sér erfðarrétt.
Hvaða munstur skerð þú helst út? Ber útskurðurinn eða munstrin sem þú notar einhver heiti? Hvaða heiti? Er eitthvað sem þér finnst að eigi ekki að skera út í laufabrauð? Hvað og hvers vegna, ef svo er?
Hringur rós og tré eru mikið gerð og svo 3ja strika letiskurður allt gert með járni. Yfirleitt fer fram smá keppni í hver getur skorið bestu kirkjuna en það er gert með hnífum.
Hvað ræður því helst hvað þú skerð út? Skipta hefðir máli í þessu sambandi eða hvaðan færð þú hugmyndirnar? Vilt þú nostra við útskurðinn, gera flókin mynstur eða vera fljótur vegna þess að það eru margar kökur sem þarf að skera út?
Sjálfur er ég lítið orðinn í nostrinu og sé soldið um magnið.
Er eitthvað sem þér finnst skemmtilegra eða leiðinlegra að skera út en annað? Hvað, ef svo er? Eða er þetta kannski alveg hlutlaust?
Það er eiginlega ekki málið heldur samkoman.
Hvað skera aðrir út í þínum hópi? Er það á einhvern hátt frábrugðið því sem þú gerir?
Fangamörk eru vinsæl einkum meðal þeirra yngri.
Hver kenndi þér að skera út? Hefur þú kennt einhverjum útskurð? Hverjum?
Amma, mamma og frænka. Við systir mín höfum kennt börnum og barnabörnum.
Hverjir sjá um að skera út? Geta allir tekið þátt, börn líka?
Allir sem nenna og meðan þeir nenna og slysakökur eru líka steiktar og bara étnar strax.
Hvaða áhöld og annað sem til þarf er notað við steikinguna? Segðu frá þeim og hvaða hlutverki þau gegna.
Fyrrnefndur pottur frá mömmu (laskaður á eyra) og forláta bakki til að pressa kökurnar sléttar þegar þær koma upp úr pottinum og eru ekki farnar að harðna.
Hafa orðið einhverjar breytingar á því hvaða útbúnaður er notaður? Hvaða breytingar, ef svo er?
Nei. Nema að yngra fólkinu er ýtt soldið í að steikja.
Upp úr hverju er brauðið steikt og hve lengi? Hvað eru búnar til margar kökur? Er afskurðurinn steiktur?
Jurta feiti. Yfir leitt 25 - 30 kökur á heimili. Allt steikt.
Er laufabrauðið pressað eftir að búið er að steikja það? Með hverju er pressað? Ef að það er ekki pressað, hvað er gert við brauðið þegar það kemur upp úr pottinum?
Já pressað með gömlum blikk bakka sem á eru fætur sirka 2-3 mm háir.
Segðu frá því hvernig brauðinu er pakkað inn og gengið frá því til geymslu.
Í makingtos dós.
Eftir hvaða reglum er laufabrauðinu skipt á milli fólks? Hvað fá menn venjulega margar kökur í sinn hlut?
Skipt jafnt á heimili 25-30 kökur á hvert.
Hvað tekur vinnan við laufabrauðið langan tíma, frá upphafi til enda?
4-6 tíma í eftirmiðdaginn.
Hverjir sjá um að steikja og ganga frá kökunum? Er kynja- eða verkaskipting við þetta? Getur þú sagt frá því?
Við róterum fólki og reynum að allir fái að koma að því sem þeir ráða við, óháð kyni.
Laufabrauð er mest borðað um jólin, eins og allir þekkja, en hvenær er byrjað að smakka á því?
Þorláksmessa er oftast dagurinn á okkar heimili.
Með hverju þykir þér best að borða laufabrauð?
Hangikjöti og meðlæti með því, rauðkáli, grænum baunum, uppstúf og smjöri jafnvel flatkökum.
Borðar þú, eða fólk sem þú þekkir, laufabrauð með einhverju sem talist gæti óhefðbundið meðlæti? Ef svo er, hvað er hér helst um að ræða?
Besta snakk með glögg og rauðvíni.
Hvernig kökur þykja ykkur bestar? Nefnið hráefni o.fl.
Veit ekki uppskriftina en við kaupum þau norðan úr Eyjafirði.
Hvað endist þinn laufabrauðsskammtur lengi? Hvað er gert við afganginn frá jólunum?
Getur ennst fram yfir páska. Afgangurinn er étin sem snakk með víni eða bara yfir sjónvarpinu.
Hvenær og hvernig er afskurðarins neytt? Hvaða heiti þekkir þú á honum?
Afskurður er ekki mikill í aðkeyptu kökunum en ef hann er, er hann notaður til að kanna hitann á feitinni og étinn strax.
Kaupir þú tilbúið laufabrauð í búðum eða bakaríum? Frá hvaða aðila er besta brauðið að þínu mati?
Já að norðan.
Hver er tilgangur þess að búa til laufabrauð, annar en hinn praktíski svo að segja? Hvaða þýðingu hefur þessi hefð fyrir þig?
Fjölskyldusamveran á aðventunni er orðin alveg ómissandi, og fyrir mig óhugsandi að missa þennann góða sið.
Getur þú sagt frá laufabrauðsgerð? Þetta geta verið minningabrot, þín upplifun, hvort og með hvaða hætti hefðin hefur breyst, hvað er jákvætt, hvað er neikvætt eða annað sem kemur upp í hugann.
Konan mín sem er árnesingur vissi ekki einu sinni hvað laufabrauð var og okkar fyrsta búskapar ár var ekkert laufabrauð. En einhverntíma fyrir næstu jólin færðist laufabrauð í tal þegar við hittum vinnufélaga hennar og ein úr hópnum sá aumur á mér og sendi hana með nokkrar kökur. Frúin mín gerði sér ekki grein fyrir hvernig þetta brauð var öðruvísi en annað og henti pokanum bara í aftursætið ásamt öðru dóti en ég snæddi brotin með góðri lyst. Tengdadóttir mín sem er tékknesk er orðin meistari í út skurðinum og fer að slá systur mína út en sú hefur borið höfuð og herðar yfir okkur í listinni.

Questionnaire
Record type
Giver
Keywords