Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1964)
Dating
Day sent: 04.12.2020
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2020-3-39
Place
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Questions / Answers
Gerði fjölskylda þín laufabrauð á æskuárum þínum? Ef svo er, hverjir á heimilinu tóku þátt? Komu aðrir að laufabrauðsgerðinni en heimilisfólkið? Hverjir, ef svo er?
Stórfjölskyldan kom saman. Síðar kom amma til okkar og gerði með fjölsk laufabrauð.
Fór laufabrauðsgerð sem þú tókst þátt í eingöngu fram á heimili þínu eða á fleiri stöðum? Hvaða stöðum?
Heimili ömmu og afa fyrstu árin síðan á heimili foreldra minna.
Hvar og hvernig kynntust foreldrar þínir þessari hefð? Nefndu einnig sveitarfélag og hvort það var í þéttbýli eða til sveita.
Mamma kom frá Akranesi og þekkti þetta ekki. Amma mín (fædd1913) var Eyfirðingur og var þetta hefð í hennar fjölsk. Hún bjó á þeim tíma á sveitabæ rétt við Akureyri.
Var laufabrauðið sem þú þekktir í æsku svipað því sem kallað er laufabrauð í dag? Ef ekki, gætir þú lýst brauðinu sem kallað var laufabrauð í þínu ungdæmi?
Laufabrauðið var gert frá gunni og flatt út. Amma var ekki ánægð fyrr en kakan var það þunn að nánast væri hægt að lesa blöðin í gegnum hana. Við notuðum samt laufabrauðshjól en skárum ekki út. Èg kaupi ósteiktar kökur og sker og steiki. En hef núna í nokkur ár gert hluta af laufabrauðinu,sem ég tek, með Mývetningum og Bárðdælingum þar sem notast er við gamlar hefðir og allt gert upp á gamla mátann. Þe flatt út og handskorið. Þvílík listaverk í laufabrauðsútskurði hjá hópnum hef ég aldrei um dagana séð.
Ef að þú komst ekki að gerð laufabrauðs í æsku en tókst þátt í henni seinna á ævinni, hvaðan og hvenær kom hún inn í líf þitt?
Hef alltaf gert laufabrauð.
Býrð þú til laufabrauð í dag? Gerir þú það með fleiri en einum hópi, ef svo er? Hvaða hópum?
Við systkinin sem erum hér fyrir norðan komum saman ásamt börnunum okkar og skerum út og steikjum laufabrauð. Hluti af hópnum sker út með hníf á gamla máta. Svo gerum við með vinum ættuðum úr Mývatnssveit og Bárðadal.
Kemur þú að gerð laufabrauðs á hverju ári eða hefur þú hugsanlega tekið pásu um lengri eða skemmri tíma? Hvers vegna?
Alltaf gert laufabrauð.
Er sérstakur dagur og tími tekinn frá fyrir laufabrauðið? Hvernig er hann valinn? Er gert laufabrauð á öðrum tímum árs en fyrir jólin? Ef svo er, hvenær og við hvaða tækifæri?
Við gerum laufabrauð um mánaðarmótin nóv des. Ræðst af prófatíma barnanna. Geri aldrei laufabrauð nema fyrir jólin.
Hvaða hugmyndir hefur þú um útbreiðslu laufabrauðs í dag? Finnst þér að hún hafi farið vaxandi eða minnkandi á síðustu 20-30 árum eða stendur hún kannski í stað?
Stendur í stað eða örlítið vaxandi.
Hvaða áhrif hefur COVID-19 á laufabrauðsgerð þína? Koma vídeó-símtöl á netinu, eins og t.d. á Facebook, hugsanlega við sögu? Getur þú sagt frá þessu, ef svo er?
Við systkini og börn komum saman í laufabrauðsgerð þrátt fyrir covid en vina hópurinn kemur ekki saman þetta árið.
Eru einhverjir sem halda utan um daginn eða sjá til þess að nóg sé af öllum áhöldum og öðru sem til þarf? Hverjir, ef svo er?
Ég hjá minni stórfjölsk. Mývetningarnir í vinahópnum.
Búið þið til deig sjálf eða kaupið þið það tilbúið og fletjið út? Kaupið þið útflattar kökur?
Ég kaupi deig en með vinunum er deigið gert frá grunni.
Hvaða korntegundir eða hugsanlega blöndu af þeim notið þið í deigið? Hvaða önnur hráefni eru notuð?
Bara einfalt þ.e hveiti og ekkert auka.
Hverjir búa til deigið? Þekkist kynja- eða verkaskipting við að hnoða og fletja deigið? Segðu frá því, ef svo er.
Ég kaupi frá sama bakara ár eftir ár. Í vinahópnum gerir mývetningurinn, karlmaður deigið. Karlmennirnir í vinahópnum fletja að mestu út deigið.
Hvaða áhöld og annan útbúnað notar þú við laufabrauðsskurðinn? Segðu frá því og hvaða hlutverki þau gegna.
Laufabrauðshjól sem fylgt hefur fjölsk lengi. Höfum safnað í mörg ár litlum hnífum sem henta vel í að fletta laufum og til skurðar fyrir þá sem vilja Með vinahópnum eru notaðir skurðhnífar, keyptir í apóteki.
Eiga eldri áhöldin sér sögu? Hafa einhver þeirra t.d. erfst á milli kynslóða? Hvaða áhöld, ef svo er? Hver átti þau fyrst?
Ég er með laufabrauðshjól frá mömmu. Geymt eins og gull enda var það dýrt á sínum tíma.
Hvaða munstur skerð þú helst út? Ber útskurðurinn eða munstrin sem þú notar einhver heiti? Hvaða heiti? Er eitthvað sem þér finnst að eigi ekki að skera út í laufabrauð? Hvað og hvers vegna, ef svo er?
Allt leyfilegt og heitir ekkert hjá minni fjölsk en hjá vinahópnum eru gamlar hefðir í hávegum hafðar ss má ekki nota laufabrauðshjól. Ég er ekki viss um heiti nema spírall er þekkt hjá Bárðdælingunum og er það þá keppni um hversu stóran spíral er hægt að gera.
Hvað ræður því helst hvað þú skerð út? Skipta hefðir máli í þessu sambandi eða hvaðan færð þú hugmyndirnar? Vilt þú nostra við útskurðinn, gera flókin mynstur eða vera fljótur vegna þess að það eru margar kökur sem þarf að skera út?
Ég er mjög hefðbundin og er ekki að gera flókin munstur. Nenni ekki að vera mjög lengi með hverja köku.
Er eitthvað sem þér finnst skemmtilegra eða leiðinlegra að skera út en annað? Hvað, ef svo er? Eða er þetta kannski alveg hlutlaust?
Já alveg sama.
Hvað skera aðrir út í þínum hópi? Er það á einhvern hátt frábrugðið því sem þú gerir?
Já systir mín og hennar börn gera listaverk með hnífnum ekki hjóli. Vinahópurinn gerir listaverk í hverja köku.
Hver kenndi þér að skera út? Hefur þú kennt einhverjum útskurð? Hverjum?
Amma og ég hef kennt mínum börnum.
Hverjir sjá um að skera út? Geta allir tekið þátt, börn líka?
Allir bæði börn og fullorðnir
Hvaða áhöld og annað sem til þarf er notað við steikinguna? Segðu frá þeim og hvaða hlutverki þau gegna.
Pottjárnspottur og pressubretti ómissandi.
Hafa orðið einhverjar breytingar á því hvaða útbúnaður er notaður? Hvaða breytingar, ef svo er?
Nei nema kannski hitamælir í feitina.
Upp úr hverju er brauðið steikt og hve lengi? Hvað eru búnar til margar kökur? Er afskurðurinn steiktur?
Djúpsteikingarfeiti. Ég geri 60-80 kökur en hópurinn samtals um 200 kökur 120 kökur með vinahópnum. Allur afskurður steiktur og það var merkilegt að kynnast því hjá vinunum að afskurðurinn heitir ekki það sama hjá Bárðdælingum og Mývetningum geiri hjá öðrum man ekki í augnablikinu heitið hjá hinum.
Er laufabrauðið pressað eftir að búið er að steikja það? Með hverju er pressað? Ef að það er ekki pressað, hvað er gert við brauðið þegar það kemur upp úr pottinum?
Já alltaf pressað með sérstökummpressuplatta.
Segðu frá því hvernig brauðinu er pakkað inn og gengið frá því til geymslu.
Legg yfir það plastpoka en loka ekki alveg. Verður að anda.
Eftir hvaða reglum er laufabrauðinu skipt á milli fólks? Hvað fá menn venjulega margar kökur í sinn hlut?
Allt ákveðið fyrirfram.
Hvað tekur vinnan við laufabrauðið langan tíma, frá upphafi til enda?
Með systkinunum tekur það um 3-4 klst en með vinahópnum allann daginn enda miklu meiri vinna að gera allt frá grunni.
Hverjir sjá um að steikja og ganga frá kökunum? Er kynja- eða verkaskipting við þetta? Getur þú sagt frá því?
Ég steiki alltaf hjá systk, tók við af pabba sem tók við af ömmu. Ég geng frá kökunum.
Laufabrauð er mest borðað um jólin, eins og allir þekkja, en hvenær er byrjað að smakka á því?
Rétt f jól.
Með hverju þykir þér best að borða laufabrauð?
Hangikjöt en annars borða ég laufabrauð með öllum mat yfir hátíðirnar líka með fiski.
Borðar þú, eða fólk sem þú þekkir, laufabrauð með einhverju sem talist gæti óhefðbundið meðlæti? Ef svo er, hvað er hér helst um að ræða?
Held ekki hér er alltaf smurt með smjöri.
Hvernig kökur þykja ykkur bestar? Nefnið hráefni o.fl.
Hefðbundnar.
Hvað endist þinn laufabrauðsskammtur lengi? Hvað er gert við afganginn frá jólunum?
Klárað með þorramatnum ef verða afgangar.
Hvenær og hvernig er afskurðarins neytt? Hvaða heiti þekkir þú á honum?
Strax og klárast fyrir jól. Afskurður hjá mér geiri hjá Bárðdælingum.
Kaupir þú tilbúið laufabrauð í búðum eða bakaríum? Frá hvaða aðila er besta brauðið að þínu mati?
Axelsbakarí.
Hver er tilgangur þess að búa til laufabrauð, annar en hinn praktíski svo að segja? Hvaða þýðingu hefur þessi hefð fyrir þig?
Skemmtileg hefð og mikil fjölskyldu og jólastemming. Öll fjölsk kemur saman og börnin bíða spennt. Einnig mjög gaman þegar vinirnir koma saman myndast alveg einstök stemmning.
Getur þú sagt frá laufabrauðsgerð? Þetta geta verið minningabrot, þín upplifun, hvort og með hvaða hætti hefðin hefur breyst, hvað er jákvætt, hvað er neikvætt eða annað sem kemur upp í hugann.
Man bara eftir notalegheitum. Sé ömmu alltaf fyrir mér fletja út örþunnar kökur og passa uppá að þær væru það hjá öllum hinum. Einnig hversu mikilvægt væri að setja skornar kökur á útbreidd lök og annað lak ofaná því kökurnar máttu ekki vera of blautar þegar þær voru steiktar.

Questionnaire
Record type
Keywords