Saumavél

In preservation at
Akureyri Museum
Fótstigin Husquarna (Freja) saumavél í borði úr spónlögðu maghoni. Ofan í borðið er þrykkt framleiðslunúmer 1532. Vélin sjálf hefur númerið 476976. Vélin sjálf fellur ofan í plötu sem er 95 x 47 sm, auk vængja til beggja enda 48 x 47 sm. Vængirnir falla síðan saman ofan á plötunni. Vélin er mjög skrautleg með marglitum og gylltum rósum. Undir plötunni eru fjórar skúffur, tvær hvoru megin undir tvinnakefli og annað tilheyrandi saumaskap. Messinghöld eru á skúffum, eitt þeirra vantar. Undir vélinni eru fætur úr pottjárni, lakkað svart, auk pedala og svinghjóls en sveif á milli pedala og svinghjóls er úr tré. Gangfær.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 4815 "Museumnumber b": 1979-4815
Dimensions
95 x 47 x 77 cm Lengd: 95 Breidd: 47 Hæð: 77 cm
Place
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Keywords
Keyword: Saumavél