Saumaprufa

1949 - 1951
In preservation at
Reykjavík City Museum
Saumaprufa. Vélsaumstækni. Markmiðið var að kenna undirstöðuatriði í fatasaumi. Vasi með lista (vestisvasi). Vasabrún undir listanum er brydduð. Vasafóðrið er varpað (saumað) niður í höndum. Efnið er ullargaberdín (stríðs-gaberdín). Haft er eftir Hólmfríði að efnið hafi verið í tísku á stríðsárunum: “Það var hundvont að sauma úr því, því það var erfitt að pressa það vel”. Í bókinni "Dúkur og garn" eftir Elsu E. Guðjónsson sem kom út árið 1953 skrifar Elsa um ullargaberdín á bls.113: “Sterkt, þétt, alveg snöggt kamgarnsefni (kambgarn). Einkennandi vaðmálsvend. Notað í karlmannsföt, dragtir, kápur o.fl.”. HÁ: “Sumum þótti það í lagi þó gaberdínið krumpaðist eins og hörinn, því það er eiginleiki efnisins. Þess ber að geta að það var erfitt að fá góð efni á þessum tíma”. Unnið í Handavinnudeild Handíða- og myndlistaskólans 1949-1951. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Main information

Title
Proper noun: Saumaprufa
Dating
1949 - 1951
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-24-25
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Saumaprufa
Keyword:
Skólahandavinna
Keyword:
Textíll
Keyword:
Vélsaumsprufa