Photography

01.01.1907
In preservation at
Akureyri Museum
Vilborg Kristjánsdóttir f.28.6.1887, Tungu

Main information

Dating
01.01.1907
Object-related numbers
Museumnumber a: BS-96
Exhibition text
Sýningin Ljósmyndari Mývetninga - mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar. Myndasalur Þjóðminjasafns Íslands 29. janúar - 2. maí 2011. Vilborg Kristjánsdóttir í Stórutungu í Bárðardal 1907 Vilborg er á peysufötum. Athygli vekur hve húfan er aftarlega á höfðinu, en það kann að vera til að hárið njóti sín betur á myndinni. Seinna var tískan sú að hafa húfurnar framar og nær enninu. Slifsið er hnýtt alveg uppí háls með hálfum hnút og fest með brjóstnælu. Það er með síðu kögri. Efnismikil léreftsblúnda virðist vera fest innan á treyjubarminn og með hálsmáli og niður yfir peysubrjóstið. Hún er með síða festi um hálsinn hugsanlega úrfesti.  Hún er 20 ára við myndatökuna. (ILB)
Record type
Collection
Undirskrá: Glerplötur - Bárður Sigurðsson
Classification
References
Myndabók Bárðar Sigurðsson, varðveitt á Minjasafninu á Akureyri. Eftir fráfall Bárðar árið 1937 seldi Sigurbjörg Sigfúsdóttir ekkja hans Eðvarði Sigurgeirssyni ljósmyndara á Akureyri plötusafn hans, sem varðveitti það mjög vel í upprunalegum umbúðum Bárðar í húsi sínu, Möðruvallastræti 4 á Akureyri. Eftir fráfall Eðvarðs og Mörtu Jónsdóttur konu hans,  komu börn þeirra Egill Eðvarðsson og Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir safni Bárðar til varðveislu á Minjasafnið á Akureyri. Safnið samanstendur af um 850 glerplötum sem eru bæði mannamyndir og útimyndir af ýmsum toga. Ljóst er að þetta er ekki allt glerplötusafn Bárðar því fleiri myndir eru til eftir hann, sem ekki eru í þessu plötusafni.