Sauðabjalla

In preservation at
Akureyri Museum
Kindabjalla eða sauðabjalla. Stærð með áfestu haldi: hæð 7,6 sm., stærsta þvermál 5,5 sm. Í meðfylgjandi bréfi segir svo: Kindabjalla frá Íslandi, sem Helgi Steinberg Pétursson Péturssonar frændi Guðmundar skálds á Sandi gaf Rósu Davíðsdóttur þegar hann og kona hans komu frá Íslandi sem landnemar. Pétur Pétursson var bóndi að Narfastöðum í Reykjadal. Helgi Steinberg var um tíma vinnumaður hjá séra Jónasi Jónassyni á Hrafnagili. Munir no. 4595 - 4598 voru sendir safninu frá Ameríku.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 4598 "Museumnumber b": 1979-4598
Dimensions
7.6 x 0 x 0 cm Lengd: 7.6 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Place
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Record type
Collection
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Keywords
Keyword: Sauðabjalla