Barn

04.07.1891
Kristjana Guðmundusdóttir, ekkja á Ísafirði með börnum, líklega börnum sínum þrem, þeim Kristínu, Aðalbirni og Aðalheiði Guðmundusbörnum. Fjórða barnið er líklega Annika Sandholt Jensdóttir sbr. myndir BP-1891-59 og 60. Kristjana fæddist árið 1853 að Sæbóli á Ingjaldssandi og lést á Ísafirði árið 1941. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson og Elínborg Jónsdóttir. Kristjana giftist Guðmundi Ebenezerssyni og áttu þau átta börn. Guðmundur fórst með þiljubátnum Olavíu, sem sökk árið 1889. Af átta börnum missti Kristjana fimm þeirra á barnsaldri. Kristín Ingibjörg Guðmundsdóttir fædd að Sæbóli 1878, lést 1899. Aðalbjörn Guðmundsson, fæddur 1879, fluttist til Kanada á fullorðinsárum. Aðalheiður Guðmundsdóttir, fædd 1888, giftist Guðmundi Björnssyni kaupmanni á Ísafirði. Annika Sandholt Jensdóttir fæddist á Ísafirði 11. september 1888 og lést 19. mars 1927.  Foreldrar: Jens Egilsson Sandholt verslunarmaður á Ísafirði og Jónína Þorgerður Biering Sandholt. Eiginmaður: Páll Eggert Ólason doktor og prófessor í sagnfræði.  Annika lést á Vífilsstöðum eftir langvinn veikindi árið 1927 og ólust börn hennar upp hjá ömmum sínum eftir dauða hennar.

Main information

Dating
04.07.1891
Object-related numbers
Museumnumber a: BP-1891-65
Dimensions
7 x 10.5 cm
Place
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Record type
Collection
Undirskrá: Björn Pálsson ljósmyndari
Classification
Keywords
Depiction: Barn
Depiction:
Drengur
Depiction:
Kona
Depiction:
Peysuföt
Depiction:
Stúlka
Depiction:
Telpa
References
Skrá Björns Pálssonar 1891-1916. Eyjólfur Jónsson. (1996). Vestfirzkir slysadagar 1880-1940. Sögufélag Ísfirðinga, Ísairði, 1996.