Seðlaveski

In preservation at
National Museum of Iceland
Vínrautt/rauðbrúnt seðlaveski, merkt Iðnaðarbankanum. Prentað er á það með gylltu letri: "Iðnaðarbankinn“. Þar fyrir ofan er merk,, stjarna og tannhjól. Inn í veskinu sjálfu eru vasar fyrir greiðslukort og lítil reiknivél. Þá eru jafnframt tvö hólf fyrir seðla og í öðru þeirra nafnspjald, merkt: Amma Lú matsölu og skemmtistaður, og nafninu Jón Þorsteinsson, veitingarstjóri. Á bakhliðina er handskrifað með bláum penna: „Hreinsun á fötum – Jón. Þ.“ Þrjú greiðslukort eru í veskinu, öll merkt gefanda. Í veskinu er bókamerki í stíl við það, merkt eins og veskið og með kögri efst.  Samkvæmt gefanda voru þetta með fyrstu seðlaveskjunum sem innihéldu reiknivél. Hún er knúin sólarorku. Á henni stendur "SOLAR POWER SC-1". Allir munirnir númer Þjms. 2018-61 koma frá sama gefanda og eru úr fórum hennar sjálfrar, foreldra hennar, móðursystur og fleiri.

Main information

Object-related numbers
"Museumnumber b": 2018-61-8
Dimensions
17.8 x 10 x 1.4 cm Lengd: 17.8 Breidd: 10 Hæð: 1.4 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Seðlaveski