Barmmerki, + hlutv.

1980 - 2000
In preservation at
National Museum of Iceland
Fjögur barmmerki sem gefandi eignaðist í gegnum árin. Öll eru þau hvít í grunninn. Eitt er með rauðri, mjórri línu við kant. Fyrir miðju stendur með ljósbláum breiðum stöfum „H2O“ og undir því, í sveig, stendur „(TÆRT OG GOTT!)“. Þvermál 3,7cm. Á öðru eru þrjár tegundir leturgerða og á því stendur „Svart á hvítu“ í sveig efst. Fyrir miðju kemur svo „Þeim var eg verst...“ feitletrað, og undir því stendur „Laxdæla.“. 3,7cm þvermál. Grunnliturinn er eilítið farinn að gulna. Hið þriðja er svipaðrar gerðar. Á því eru þrjár tegundir leturgerða og þar stendur „Svart á hvítu“ í sveig efst. Fyrir miðju er svo, feitletrað, „Þótt eg viti bana minn þá vil eg þér fylgja.“ og undir því stendur „Njálssaga.“. þvermál 3,7cm. Grunnlitur er eilítið farinn að gulna. Á fjórða merkinu er fyrir miðju mynd af blómi með tveimur blómahausum, annar er rauður en hinn svartur, sá rauði vísar upp meðan sá svarti hangir niður. Fyrir ofan blómið stendur „VÍMULAUS?“. Vinstra megin við blómið stendur „13 ÁRA“, með hvítum feitletruðum stöfum með rauðum kanti. Fyrir neðan það (einnig t.v.) er merki Lionshreyfingarinnar og neðst stendur „AUÐVITAГ. Þvermál 4,5 cm. Allir munirnir númer Þjms. 2018-61 koma frá sama gefanda og eru úr fórum hennar sjálfrar, foreldra hennar, móðursystur og fleiri.

Main information

Dating
1980 - 2000
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2018-61-6
Dimensions
3.7 x 0 cm Lengd: 3.7 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords