Veggteppi
1931

In preservation at
National Museum of Iceland
Veggteppi úr grænu ullarefni og útsaumað með krosssaumi, hugsanlega að sænskri eða norskri fyrirmynd, þar sem myndefnið virðist ekki eiga rætur að rekja til íslenskrar náttúru. Fyrir miðju er rauður og grænn blómavasi með tveimur handföngum og á honum er ártalið 1931. Í vasanum eru blóm, samhverf. Á báðum endum veggteppisins er að finna blá blóm sem eru að líkindum bláklukkur. Efst og neðst má sjá síendurtekin fuglamunstur sem ná yfir allan renninginn, það efra minna en það neðra. Hægra megin á teppinu er að finna þó nokkur dádýr og héra, einnig er fígúra sem virðist vera að gefa þeim að borða. Hjá þeim eru tvær bjöllur sem búið er að persónugera, þær eru á göngu með jarðarber og laufblöð. Vinstra megin við blómavasann eru svo tré með fuglum, tvær fígúrur, sumarhús og fiðrildi. Neðst á veggteppinu er kögur.
Veggteppið fengu foreldrar gefanda, Laufey Gísladóttir (f. 1914, d. 1974) og Jón Guðmundsson (f. 1896, d. 1988) að gjöf frá Árnýju Filippusdóttur (f. 1894, d. 1977). Hún var forstöðukonu kvennaskólans í Hveragerði og hugsanlega hefur hún saumað það sjálf. Veggteppið hékk í stofu þeirra hjóna undir útskorinni hillu.
Allir munirnir númer Þjms. 2018-61 koma frá sama gefanda og eru úr fórum hennar sjálfrar, foreldra hennar, móðursystur og fleiri.
Main information
Dating
1931
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2018-61-3
Dimensions
126 x 54 cm
Lengd: 126 Breidd: 54 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Veggteppi
