Hirsla, húsmunur

1830 - 1880
Kistill. Mjög lítill og nettur, eikarmálaður úr tré, 17 x 31 x 19 cm. Kistillin er geirnegldur. Lætur dálítið á sjá og er brotið af hægra neðra horni. Lokið er slétt, á tveimur járnhjörum (10 mm), málað gult að innan. Lokið er 6,5 cm djúpt. Þegar kistillin er uppréttur er lokið (að innan) sem skápur með hurð og ein tréhilla innan í. Tvær hjarir eru á hurðinni, úr járni og festar með járnnöglum, hurðin er með tréhaldi og tréloku til að loka hurðinni. Hurðin er 20 x 6,5 cm. Lítill handraði er í kistlinum hægra megin þegar opnað er, honum er skipt í tvö hólf, misstór og er það minna með loki, málað gult eins og kistillokið sjálft að innanverðu. Í kistlinum eru tvær bækur, nýja testamentið og minningarbók frá Hólaskóla, ásamt mynd af Hólmfríði. Kistill þessi bjargaðist úr brunanum á Hólum er skólahúsið brann á 3. áratugnum.

Main information

Dating
1830 - 1880
Object-related numbers
Museumnumber a: BSk-2802 "Museumnumber b": 1997-785
Dimensions
31 x 17 x 19 cm Lengd: 31 Breidd: 17 Hæð: 19 cm
Place
Staður: Efri-Ás 1, Skagafjörður
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords

Place of origin

65°45'38.2"N 19°12'46.1"W