Karlmaður
1965 - 01.01.1966

In preservation at
National Museum of Iceland
1036. N-Þingeyjarsýsla. Húsavík. Bjarni Ásmundsson með kóp.
Hafþór Hreiðarson kom með eftirfarandi sögu af tilurð kópsins: Það er saga á bak við kópinn sem gaman væri að segja en í stuttu máli var það þannig að pabbi, Hreiðar Olgeirsson, skaut urtuna þar sem þeir á Kristbjörginni voru við Rauðanúp. Þetta var hafísvorið 1965 og eitthvað reiðuleysi en þeir voru á netum. Þegar þeir höfðu náð henni um borð tók Eiríkur eftir hreyfinu á kvið hennar. Hann var snöggur til og tók keisaraskurð á hana og þar kom þessi kópur sprelllifandi í heiminn. Honum var síðan komið í fóstur hjá Bjarna Ásmundar í Flókahúsinu. Þar komst hann vel á legg og þegar kallinn ætlaði að sleppa honum gekk það fremur illa. Eða ekki neitt væri réttara að segja því hann fór með hann í fjöruna en kobbi vildi ekki í sjóinn. Elti bara þann gamla í fjörunni eins og hver annar hundur. Því var tekið á það ráð þegar Helgi Flóventsson ÞH var að halda til veiða að útbúa stíu undir kópinn og honum sleppt þegar á hafið var komið. Eins og áður segir var þetta árið 1965 og var það á afmælisdag pabba, 26. maí, sem hann skaut selinn sem var sá fyrsti og eini um ævina, a.m.k. hingað til.
Main information
Dating
1965 - 01.01.1966
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: ÞJ_Þing-1036
Place
Núverandi sveitarfélag: Norðurþing, Norðurþing
Record type
Collection
Undirskrá: Þorsteinn Jósepsson (ÞJ)
Undirskrá: Þorsteinn Jósepsson_Þingeyjarsýsla (ÞJ_Þing)
Classification
Copyright
Copyright: Þorsteinn Jósepsson-Erfingjar
