Copyright: Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Myndstef

Flug

In preservation at
National Gallery of Iceland
Verkið var gert fyrir sýningu Kristínar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 1996, sem var samvinnuverkefni stjórnar flugstöðvarinnar og FÍM (Félags íslenskra myndlistarmanna). Verkið var sýnt í aðalgangi byggingarinnar og sýningarrýmið veggirnir þar sem gengið var út í flugvélarnar. Kristín notaði vegginn báðum megin og var verkið í tveimur jafn stórum hlutum sem voru í formi eins og oddaflug fugla. Á hægri vegg var hreyfing verksins út úr byggingunni, á þeim vinstri inn. Verkið er gert úr mörgum litlum plexiglerhólkum með hvítu ullartogi. Ári seinna var verkið sýnt í Gerðarsafni og var þá upphenginunni breytti og þessir tveir hlutar gerðir að einum þar sem verkið hékk á stórum vegg og hafði góða fjarlægð.  Flug er þannig hugsað að engin endanleg fyrirskipun er um uppsetningu á því, hún má vera breytileg. Aðalatriðið er að hrynjandin, hreyfingin, haldist. Hugsunin í verkinu er einfaldleiki sem gefur möguleika á blæbrigðum. Efnisval er líka einfalt, annars vegar hart og glansandi iðnaðarefni, hins vegar hið lífræna: ullin, lítt unnin, í náttúrulit.  Kristín tileinkar verkið minningu móður sinnar, Solveigar Kristjánsdóttur, f. 1905, d. 1998. Hún hafði yndi af því að ferðast.

Main information

Title
Art title: Flug
Dating
= 1996
Object-related numbers
Museumnumber a: LÍ-9184
Dimensions
150 x 1100 x 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Aðalskrá
Classification
Copyright
Copyright: Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá Copyright: Myndstef