Útsaumsmappa I
1948 - 1949

In preservation at
Reykjavík City Museum
Vinnumappa í útsaumi úr Handavinnudeild Handíðaskólans 1948-1949.
Verkleg sýnishorn og vinnuteikningar.
Innihald möppu talið upp í sömu röð og er í möppunni.
Forsíða.Vinnubók. Vigdís Pálsdóttir.
Vöfflusaumur.
Nokkur saumspor. Sjá fylgiblað á næstu síðu.
Fylgiblað með upptalningu á saumsporum frá fyrri síðu.
Útsaumsprufa, merkt VP 48. Óvenju fjölbreytt og litrík útsaumsspor og útsaumsbekkir þar sem mörgum saumgerðum er blandað saman. Athygli er vakin á faldi prufunnar sem er saumaður niður með margskonar útsaumssporum.
Prufa með nokkrum grófum saumsporum. Þræðispor, afturstingur og hálfur krosssaumur. Brúnir saumaðar saman í höndum, faldur þræddur og varpaður niður. Tvöfaldur saumur í höndum. Efnið í prufunni er mjög gróft, og einnig allur saumur.
Viðgerðarprufa. Prjónastopp, vaðmálsstopp, rifuð saman rifa (einskeftuvefnaður), einskeftustopp. Það er klippt undan öllum viðgerðargrunnum áður en stoppað er í. Saumað er ídregið tunguspor (kappmelluspor) í kringum prufuna. Kanturinn rakinn upp að tunguspori.
Útsaumur með prjónspori í prjónaða prufu og teikning af munstrinu.
Krosssaumsprufa eftir útsaumsmunstri, sjá hluta af munstri á tveimur næstu síðum.
Munstur teiknað á rúðustrikað blað, einnig á bakhlið.
Munstur teiknað á rúðustrikað blað. Nokkur munstur með lit.
Nafnið MJÓLK saumað með krosssaumi. Gengið frá kanti með óröktum gatafaldi. Saumuð perla í hornin. Prufan er varin með sellófani sem er heft á spjaldið.
Prufa með mörgum grunnum. Saumgerðir: Herpisaumur, ferningsspor, góbelínsaumur og augnspor. Grunnarnir eru saumaðir með ýmsum útfærslum af saumsporum. Gengið frá kanti með óröktum gatafaldi. Grunnefnið nefnist „etamín“ sem er gisið efni, oft notað í dúka. Það þótti gott fyrir útsaum.
Útlitsteikning af prufunni.
Teikning af útsaumsgrunnum.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Main information
Vigdís Pálsdóttir, Used by
Donor: Vigdís Pálsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Donor: Vigdís Pálsdóttir
Recorder: Sigrún Guðmundsdóttir
Recorder: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Title
Proper noun: Útsaumsmappa I
Dating
1948 - 1949
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-34-3
Dimensions
0 x 26 x 30 cm
Breidd: 26 Hæð: 30 cm
Place
Staður: Myndlista- og handíðaskóli Íslands, Skipholt 1, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Skólahandavinna
Place of origin
64°8'29.0"N 21°54'37.4"W





