Klyfsöðull

Klyfsöðull úr járni og tré (furu). Með leðurólum. Lengd hliðarfjala, sem eru tvær og leggjast á síðu hestsins, þ.e. ofan á reiðing eða dýnu, er 49,5 cm. Breidd fjala 11 cm. Þykkt 0,6 cm. Bogarnir, sem eru úr járni eru báðir jafnháir 19 cm. Breidd/vídd milli fjala 16 cm fram og 19 cm aftan. Krókar um 8 cm langir en fjórir samtals, tveir sitt hvoru megin á boganum. Þeir eru hnoðaðir á bogana. Bogarnir eru 3,2 cm breiðir og 0,5 cm þykkir. Þeir eru festir á hliðarfjalirnar með boltum/þykkum nöglum og hausinn hnoðaður. Boruð eru sex göt á hvora fjöl. Sitt hvoru megin við bogafestingar og í miðju. Móttök úr leðurólum eru negld og skrifuð á hliðarfjalir - milli boganna. Lengd þeirra er mismikil frá 47 - 51 cm, og 2,7 - 3 cm breið. Leðursvarðir þríhyrningar eru festir innan við bogana og mynda einskonar sæti fyrir hana eða annað og annars vegar hefur verið smástubbar negldir ofan á þríhyrningana, sennilega til að hækka sætið. Reiðinn, sem er úr leðri er 81 cm með volkanum.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: BSk-4170 "Museumnumber b": 2005-118
Dimensions
49.5 x 11 x 0.6 cm Lengd: 49.5 Breidd: 11 Hæð: 0.6 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Klyfsöðull
Keyword:
Reiðtygi
Keyword:
Reiðver