Telpukjóll og undirbuxur

1962 - 1963
In preservation at
Reykjavík City Museum
Telpukjóll og samstæðar undirbuxur. a) Telpukjóll. Vélsaumur og útsaumur. Kjóllinn er saumaður saman á hliðum og öxlum með tvöföldum saumi. Hann er í þremur stykkjum að framan, sléttur í miðju með vöfflusaumi til beggja hliða. Úsaumuð mynd að framan (gæs). Hliðarstykkin eru saumuð við með miðseymi. Lítill ávalur (rúnnaður) kragi, bryddaður með skábandi. Litlar púffermar. Lítið berustykki að aftan og kjóllinn hnepptur niður bakið. Fjögur handunnin hnappagöt. Kjóllinn er saumaður 1962-1963, samkvæmt námskrá 1960 (sjá einnig drög frá 1948). b) Undirbuxur. Stuttar buxur með kjólnum. Teygja í mittið og í opi fyrir fætur (buxnaskálmar). Efni     Bómullarléreft. Hvítt. Bryddað með gulum skáböndum. Útsaumsgarn. Bómull (árórugarn). Nemendavinna úr Gagnfræðaskóla Vesturbæjar við Hringbraut 1962-1963. Kennari: Gíslrún Sigurbjörnsdóttir. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Main information

Title
Proper noun: Telpukjóll og undirbuxur
Dating
1962 - 1963
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-11-15
Dimensions
0 x 48 x 36 cm Breidd: 48 Hæð: 36 cm
Place
Staður: Gagnfræðaskóli Vesturbæjar, Hringbraut 121, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Barnaföt
Keyword:
Skólahandavinna
Keyword:
Textíll

Place of origin

64°9'2.8"N 21°57'38.9"W