Svunta með smekk

1959 - 1960
In preservation at
Reykjavík City Museum
Svunta með smekk. Svuntan var skyldustykki í 11 ára bekk. Smekkurinn er utanáliggjandi og nær niður á svuntuna í miðju að framan og myndar þar spíss (hvass oddur). Hægra megin að framan er lítill vasi, einnig með spíss að neðan. Svuntan er rykkt undir strenginn sitt hvoru megin við smekkinn og bundin saman að aftan. Brotið er inn af böndunum á hliðum og það saumað í saumavél. Innafbrot á hliðum svuntu og smekks er einnig saumað í saumavél. Faldur að neðan er saumaður í höndum en faldur á smekk er saumaður í saumavél. Hálsbandið er saumað tvöfalt og fest við smekkinn í höndum. Útsaumur: Munsturbekkur er neðan á svuntu, vasa og smekk. Saumgerðir: Holbeinsaumur, ídregið þræðispor og góbilínsaumur / flatsaumsspor. Fangamarkið AJ á smekk er saumað með krosssaumi. Skylduvinna í Melaskóla samkvæmt námskrárdrögum frá 1948. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Main information

Title
Proper noun: Svunta með smekk
Dating
1959 - 1960
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2017-3-4
Dimensions
0 x 63 x 70 cm Breidd: 63 Hæð: 70 cm
Place
Staður: Gagnfræðaskóli Vesturbæjar, Hringbraut 121, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Keywords
Keyword: Skólahandavinna
Keyword:
Svunta

Place of origin

64°9'2.8"N 21°57'38.9"W