Kniplibretti

1920 - 1985
In preservation at
Hvoll Folk museum
Pappaspjald hefur verið stoppað á annari hliðinni og utan um spjaldið saumað úr grænu bómullarefni. Á græna efninu liggur annar efnisbútur úr ljósu bómullarefni. Þar ofan á er þunnt pappaspjald, 48 x 32 cm að stærð, og á því er kniplmunstur. Byrjað hefur verið á kniplstykkinu og er það fest niður með títiprjónum. Kniplstokkarnir eru áfastir við stykkið. Þeir eru allir í flækju. Kniplbrettið og allt sem á því er , er illa farið, blettótt og rifið. Eftirfarandi lýsing á lífshlaupi Helgu er fengið úr skrifum Sigrúnar Margnúsdóttur um frænku sína. ,,Helga Vilhjálmsdóttir var fædd 11. febrúar 1902 að Ölduhrygg í Svarfaðardal. Hún var dóttir hjónanna Kristínar Jónsdóttur og Vilhjálms Einarssonar. Árið 1904 fluttu þau hjónin að Bakka í Svarfaðardal og bjuggu þar til æviloka og eru ætíð kennd við þann bæ. Helga var fimmta í röðinni af átta systkinum sem upp komust. Hún braust ung til mennta og sýndi dugnað og áræðni sem á þeirri tíð var óvenjulegt hjá ungum stúlkum. Á þeim tíma var fátítt að stúlkur færu utan til náms. Árið 1925 fór hún til Danmerkur að afla sér frekari menntunar í lýðháskóla og síðan í handavinnunám. Þá fór hún árið 1927 til Noregs og nam við lýðháskólan á Voss, sem þá naut mikillar frægðar, og lærði þar handavinnu og kjólasaum. Kennsla varð hennar lífsstarf. Við heimkomuna var hún fyrst kennari á Ólafsfirði og síðar í dalnum. Hún hélt námsskeið vítt og breitt um héraðið, m.a. í kjólasaum og saumuðu margar konurnar fyrsta kjólinn undir leiðsögn Helgu. Helga hafði sérstaka unun af að sauma barnaföt og nutu margir góðs af. Hún sendi marga kassana til Noregs eftir stríð af barnafatnaði sem hún saumaði. Helga bjó á Bakka þar til hún varð handavinnukennari við Kvennaskólann á Blöndósi haustið 1942 og gengdi hún því starfi til 1947 er hún gerðist kennari við Húsmæðraskólann á Varmalandi í Borgarfirði. Þar kenndi hún í tæp 20 ár eða til ársins 1966,, . Helga var ógift og barnlaus. Hún var frænka gefanda.

Main information

Dating
1920 - 1985
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2010-12
Dimensions
58.5 x 47.5 cm Lengd: 58.5 Breidd: 47.5 cm
Place
Staður: Bakki, 621-Dalvík, Dalvíkurbyggð, Svarfaðardalur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Kniplibretti

Place of origin

65°53'37.0"N 18°35'40.1"W