Aktygi
1920 - 1965

In preservation at
Agricultural Museum of Iceland
Aktygi á hest úr leðri og við. Talið er að aktygin hafi fylgt hestakerru sem kom til safnsins frá Fossi í Hrunamannahreppi sem Sigríður Jónsdóttir gaf. Athugið að kerran er ekki hluti af skráningu né safnkosti en myndirnar sýna notkun aktygjanna.
Fram undir lok 19. aldar voru kerrur/vagnar nær óþekkt flutningatæki hérlendis: menn báru byrgðar sínar sjálfir eða reiddu þær á hestum. Á vetrum notuðu menn einnig sleða. Með tilkomu búnaðarskóla og búfræðinga tóku kerrur að breiðast út. Segja má með nokkrum rétti að hjólið hafi komið í sveitirnar með hestakerrunum. Til þess að beisla dráttarafl hestanna þurfti aktygi. Kerruaktygi voru einnig notuð á hesta ef draga þurfti sláttuvél eða rakstrarvél. Aktygi plóghesta voru oftast einfaldari; eins konar kraga var brugðið um háls hestsins. Dráttartaugunum var fest í kragann. Þessi gerð aktygja var gjarnan kölluð hringok. Torfi Bjarnason í Ólafsdal kenndi nemendum að búa til aktygi og aktygjasmíð var kennd á búnaðarskólunum langt fram eftir 20. öld. Hestakerrutímabilið varð ekki langt hérlendis, varla nema rúm hálf öld eða svo (~1900-1960)
Main information
Donor: Sigríður Jónsdóttir
Dating
1920 - 1965
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 1016
"Museumnumber b": 2004-11-1
Place
Staður: Foss, 845-Flúðum, Hrunamannahreppur, Ytrihreppur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Place of origin
64°14'29.8"N 20°11'22.7"W





