Barmmerki, + hlutv.
1980 - 1995

In preservation at
National Museum of Iceland
Safn barmmerkja með margskonar áróðri eða áletrunum. Merkin eru 11 talsins og mismunandi að stærð og lögun:
- Stórt, hringlaga barmmerki (þvm. 7,6 cm), hvít og svart. Fyrir miðju er grafísk mynd af fugli. Fyrir ofan hann stendur Herranótt og neðan við hann stendur SÓLIN. Merkið er að öllum líkindum auglýsing fyrir sýningu leiksýningu Herranætur, leikfélags Menntaskólans í Reykjavík árið 1983. Það ár var Prjónastofan Sólin eftir Halldór Laxness sett upp af leikhópnum.
- Fremur stórt, hringlaga barmmerki, svart og hvítt, með áletruninni: NUCLEAR POWER NO THANKS.
- Hringlaga barmmerki, hvítt, blátt og svart með áletruninni: Kvenna framboðið og fyrir miðju er merki framboðsins, með skotthúfu.
- Hringlaga barmmerki, hvítt, grænt og svart með áletruninni: Kvenna listinn og fyrir miðju er merki listans.
- Hringlaga barmmerki, í íslensku fánalitunum og svört áletrun fyrir miðju: EKKI Í EES.
- Hringlaga barmmerki, hvítt með blárri áletrun sem er merki Krabbameinsfélagsins og fyrir neðan stendur: Verjumst krabbameini!
- Hringlaga barmmerki, hvítt blátt og rautt, með merki Ferðafélags Íslands og rauðum stöfum: 60 ára. Félagið var stofnað árið 1927 og merkið er því frá 1987.
- Hringlaga barmmerki, fjólublátt með hvítri slaufu fyrir miðju.
- Hringlaga barmmerki úr plasti: RAUÐI KROSS ÍSLANDS (merki Íslandsdeildar Rauða krossins).
- Ferhyrnt barmmerki, hvítt, rautt og blátt, með merki Sjálfsbjargar og áletruninni: Aðgengi fyrir alla.
- Ferhyrnt barmmerki, gult í grunninn með svartri áletrun og mynd af rauðum fíl. Áletrunin, eins og henni er stillt upp er: ÉG FÍLA SPRENGISAND. Sprengisandur var veitingastaður á horni Sæbrautar og Bústaðavegs í Reykjavík. Það er fyrirtækið Marko-merki sem framleiddi barmmerkið.
Systir gefanda, Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, safnaði barmmerkjum og eldspýtnastokkum á bernsku- og unglingsárum sínum. Barmmerkin voru í kassa ásamt eldspýtnabréfum nr. Þjms. 2016-25-2. Guðrún Jarþrúður hefur ekki tekið kassann með sér þegar hún fluttist úr foreldrahúsum og gripirnir því dagað uppi á bernskuheimilinu að Tjarnargötu 38 í Reykjavík þar sem þeir fundust nú í geymslu með öðru dóti.
Main information
Dating
1980 - 1995
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2016-25-1
Place
Staður: Tjarnargata 38, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Barmmerki, + hlutv.
Place of origin
64°8'36.6"N 21°56'46.6"W
