Copyright: Hulda Hákon, Myndstef

Sjálfsmynd með sjö draugum

= 1988, Hulda Hákon
In preservation at
National Gallery of Iceland
Lágmyndir Huldu Hákon eru yfirleitt grófgerðar og líta sumar hverjar út fyrir að vera búnar til úr spýtnabraki sem hún neglir og límir saman og málar í skærum og dökkum litum. Persónurnar á myndunum steypir hún í mót og eru engar tvær eins. Vinnuaðferðin og efnisvalið stjórnast af vanmætti hennar gagnvart viðfangsefninu. „Þetta er klastur og þess vegna vil ég hafa þetta svona.“ (Morgunblaðið, 3. apríl, 1998) Hún vill að verkin séu tímalaus og segist ekki leitast við að fanga tíðaranda. Konan á lágmyndinni er í frekar tímalausum kjól og það er dæmigert íslenskt veður, hvorki rigning né sólskin. Grjóthleðslan neðst á myndinni gæti verið táknræn fyrir íslenska þjóðmenningu en sjálf líkir Hulda grjótheðslu við sagnaarfinn. Fólk heldur áfram að bæta við hleðslum og það heldur áfram að bæta við sögum. Stundum birtast textar í verkum Huldu og oft eru þeir bæði háðslegir og ljóðrænir. Í verkinu Sjálfsmynd með sjö draugum er titillinn skrifaður á spýtnabrak neðst á myndinni. Þegar rýnt er í verkið kemur í ljós að draugarnir á myndinni eru níu talsins. Staðhæfi ngin í textanum stangast á við myndina sjálfa og vekur upp spurningar. Veit listakonan ekki af þessum tveimur draugum eða er hún að reyna að blekkja áhorfandann? Það getur verið erfi tt að þekkja drauga. Sjálf segist hún leika sér með texta í myndum sínum. Stundum notar hún setningar sem eru út í hött og þá opnast ókannaðar slóðir. Verkið kemur á óvart og minnir á hugtakið „ekki er allt sem sýnist“. Ef til vill endum við öll sem draugar!

Main information

Title
Art title: Sjálfsmynd með sjö draugum English art title: Self-Portrait with Seven Ghosts
Dating
= 1988
Object-related numbers
Museumnumber a: LÍ-7242 "Museumnumber b": 242
Dimensions
70 x 230 x 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Aðalskrá
Inscription
Signature: H. HAKON Inscription: SJÁLSMYND MEÐ SJÖ DRAUGUM - SUMAR 1988
Keywords
Art Content: Kona
Art Content:
Listamaður
Art Content:
Draugur
Edition/Series
1
Copyright
Copyright: Hulda Hákon Copyright: Myndstef