Bjarg
1900 - 1910

In preservation at
Skógar museum
Eiríkur Hjálmarsson var barnakennari í Vestmannaeyjum á árunum 1895-1928. Hann fæddist að Ketilsstöðum í Mýrdal 11. ágúst 1856. Snemma missti hann móður sína. Eiríkur fékk ekki mikla bóklega kennslu framan af en las það sem hann fékk lánað og komst í. Til 25 ára aldurs bjó hann hjá föður sínum og lærði á næsta bæ söðlasmíði. Flutti hann þá í Straumfjörð á Mýrum og fann þar eiginkonu sína. Fluttu þau árið 1885 til Vestmannaeyja. Var hann hér við verslunarstörf á Tanganum. Árið 1890 stofnaði hann sinn eigin barnaskóla og rak hann í fimm ár, eða þar til hann var ráðinn við Barnaskóla Vestmannaeyja þegar deildum við skólann var fjölgað. Hann kenndi mest megnis yngri deildinni og hélt góðum aga jafnframt því að vera ljúfur.
Kona Eiríks sem er með honum á myndinni hét Sigurbjörg R. Pétursdóttir og giftust þau árið 1888. Keyptu þau tómthúsið Nýja-Kastala. Hann nefndi hús sitt Vegamót og hét það þar til húsið fór undir hraun í gosinu 1973. Þau eignuðust 5 börn. Eiríkur lést 5. apríl árið 1931, 74 ára að aldri. Sigurbjörg, kona hans, lést árið 1946, 82 ára að aldri.
Main information
Eiríkur Hjálmarsson, Depicted
Dating
Age: 1900 - 1910
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: MRI-25
Dimensions
10.5 x 6.5 cm
Place
Staður: Vegamót, Urðavegur 4, 900-Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabær, Vestmannaeyjabær, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Mannamyndasafn
Classification
Keywords
Depiction: Bjarg
Depiction: Hjón
Depiction: Húsagarður
Depiction: Húsfreyja
Depiction: Kennari, kennslukona, kennslumaður
Depiction: Peysuföt
Depiction: Spariföt
Depiction: Hjón
Depiction: Húsagarður
Depiction: Húsfreyja
Depiction: Kennari, kennslukona, kennslumaður
Depiction: Peysuföt
Depiction: Spariföt
