Næla, til skrauts

1920 - 1930
In preservation at
National Museum of Iceland
 Hringlaga næla úr silfri, sem mótar ramma utan um ljósmynd. Umhverfis rammann eru kornsettar rósettur. Ljósmyndin, sem er rifin og nokkuð illa farin, er af Hafliða Snæbjörnssyni (f. 2.5.1886, d. 6.9.1926). Hafliði var bóndi og hreppstjóri í Hergilsey á Breiðafirði og á Skálmarnesmúla. Hafliði lést af voðaskoti, um borð í báti. Nælan er úr eigu Svövu Lárusdóttur (1911-2002), móður gefanda. Svava var fósturdóttir Hafliða og kom fyrst að honum í andarslitrunum í bátnum. Hún var þá um fermingu. Síðar, er hún gekk með Guðrúnu Hafdísi (gefanda), dreymir hana að Hafliði kemur og stendur sjóvotur í stofudyrunum og segir: „Jæja, Svava mín, nú er ég kominn til að vera hjá þér.“ Þá var Svava 42 ára. Stúlkan var þá látin heita Hafdís, eftir honum, en Guðrún heitir hún eftir ömmusystur sinni í föðurætt, en hún vitjaði einnig nafns, kom til föður gefanda og kvað þau nú geta átt samleið (nokkurn veginn þannig orðað). Nælan sjálf er í góðu ástandi þó mikið sé fallið á silfrið. Hún var geymd í skartgripaöskju úr pappa, merktri Ulrich Falkner Gullsmið, Austurstræti 22 en askjan er mun yngri en nælan.  Gripirnir númer Þjms. 2013-18 eru allir úr eigu foreldra og formæðra og forfeðra gefanda en hafa lengi fylgst að hjá henni.

Main information

Dating
1920 - 1930
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2013-18-14
Dimensions
3.1 x 1 cm Lengd: 3.1 Breidd: 1 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords