Hópmynd, óskilgreinanleg
01.11.1908

In preservation at
National Museum of Iceland
Guðmundur Jakobsson, trjesm. Laugaveg, 3 saman.
„Guðmundur Jakobsson, f. 16. janúar 1860, d. 3. september 1933. Foreldrar hans voru Jakob Guðmundsson, f. 2. júní 1817 á Reynistað, Staðarhr., Skag., d. 7. maí 1890, stúdent frá Lærða skólanum í Reykjavík 1847, cand. theol. frá Prestaskólanum 1849, barnakennari í Reykjavík 1849-51, prestur á Kálfatjörn, Vatnsleysustrandarhr., Gull., 1851-57, á Ríp á Hegra-nesi, Rípurhr., Skag., 1857-69, síðar prestur, læknir og alþingismaður á Kvennabrekku og Sauðafelli, Miðdalahr., Dal., (bjó á Kvennabrekku 1869-74, og síðast á Sauðafelli), ritstjóri blaðsins “Bónda” 1852, fulltrúi Reykjavíkinga á þjóðfundinum 1851, þingmaður Dalamanna 1883-89, mikill mælskumaður og hagorður, fékkst nokkuð við lækningar, hlaut verðlaun úr styrktarsjóði Kristján konungs níunda, og k.h. (frá 17. júní 1852) Steinunn Theódóra (Dóróthea) Guðmundsdóttir, f. 29. júlí 1835 í Dal., d. 13. febrúar 1907, húsfreyja. Guðmundur lærði trésmíði og var einn af stofnendum timbursmiðjunnar Völundur. Hann var hafnarvörður í Reykjavík 1915-17, og byggingarfulltrúi 1915-17. Guðmundur reisti mörg hús, m.a. kirkjuna á Akranesi. Kona Guðmundar var Þuríður, f. 28. ágúst 1862 á Stóra-Hrauni, Eyrarbakkahr., Árn., d. 26. maí 1943, húsfreyja. Þau eignuðust átta börn: a) Önnu, dó í æsku, b) Önnu, f. 6. júní 1887, á lífi 1947, c) Ingibjörgu, dó í æsku, d) Jakob, f. 26. ágúst 1888, d. 31. desember 1966, e) Magneu Jórunni, f. 12. september 1889, d. 8. maí 1974, f) Eggert Gilfer, f. 12. febrúar 1892, d. 24. mars 1960, g) Þórarin, f. 27. mars 1896, d. 25. nóvember 1979, h) Guðmund, f. 12. desember 1898, d. 23. október 1968.“ (ES 2025)
Main information
Dating
01.11.1908
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: PBr2-12391
Dimensions
9 x 6 cm
Place
Staður: Laugavegur, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Record type
Collection
Undirskrá: Pétur Brynjólfsson 2 (PBr2)
Classification
Keywords
Place of origin
64°8'47.7"N 21°55'58.1"W