Sýslumaður
01.01.1787

In preservation at
National Museum of Iceland
2800 Frummynd
af Sigurði Pjeturssyni, sýslumanni í Kjósarsýslu 1789 - 1803, f. 26. apr.1759,
d. 6. apr. 1827, dregin með rauðkrít af Sæmundi Magnússyni Hólm, síðar
presti að Helgafelli; er letrað S. M. Holm hægra megin við myndina
og fyrir neðan hana: Del Hafn. 11 Aug. 1787 S. M. Holm. Myndin
er mjög vel gerð; Sigurður er unglegur, grannur í andliti, hár eptir
tízku, apturkembt, mikið, fellur á bak niður og er hnýtt bandi um. Vesti
og frakki með hnöppum upp að hálsmáli, en frakkinn óhnepptur og vestið
sömuleiðis í brjósti og fellingar miklar („kalvekrýnds“) á skyrtubrjóstinu.
Lágur kragi á skyrtunni, en breiður á frakkanum. Myndin nær
niður að mitti og olbogum. Blaðið er 22,3 x 14,4 cm; hægra horn að
neðan af. Myndin er nú nr. 14 í Mms., sett í nýja umgjörð, eins og
hinar aðrar myndir Sjera Sæmundar, 26 x16 cm að innanmáli og 5 cm að br.,
úr mahógní, sljett og flöt, skygð að framan. Var áður í lítilli umgjörð
úr sama efni, mjórri (2 cm), með ljósum röndum á framhlið; er hún geymd,
- gömul og góð.
Main information
Dating
01.01.1787
Object-related numbers
Museumnumber a: Mms-14
Dimensions
22.3 x 14.4 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Classification
Keywords
Depiction: Sýslumaður
References
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins
1908 - 1931
