Steindór Jónas Steindórsson
12.8.1902 - 26.04.1997
Roles
Skólameistari
Place
Staður: Hafnarstræti 94, Hamborg, 600-Akureyri, Akureyrarbær, Miðbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Sveitarfélag 1950: Akureyri
More information
Vefbirting: Steindór Steindórsson (Steindór
Jónas frá Hlöðum) fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal 12. ágúst 1902. For.:
Jónas Steindór Jónasson (f. 27. maí 1872, d. 9. mars 1902) verslunarmaður
á Þrastarhóli og Kristín Jónsdóttir (f. 19. júní 1866, d. 10. febr. 1956)
ráðskona á Möðruvöllum. Steindór ólst upp að Hlöðum. K. (14. júlí 1934)
Kristbjörg Dúadóttir (f. 3. des. 1899, d. 16. ágúst 1974) húsmóðir. For.:
Dúi Benediktsson og k. h. Aldís Jónsdóttir. Kjörsonur (sonur Kristbjargar):
Gunnar (1923).
Stúdentspróf MR 1925. Nam náttúrufræði
í Hafnarháskóla 1925-1930, var þó eitt ár frá námi vegna veikinda. Lauk
fyrri hluta meistaraprófs í grasafræði 1930. Framhaldsnám og rannsóknir
við háskólann í Ósló 1951. Heiðursdoktor HÍ 1981.
Kennari við Menntaskólann á Akureyri
1930-1966, skólameistari 1966-1972. Vann að gróðurrannsóknum á sumrum frá
1930-1976.
Fulltrúi Íslands á þingi norrænna
náttúrufræðinga í Helsingfors 1936. Formaður Norræna félagsins á Akureyri
1939-1941 og 1956-1973. Bæjarfulltrúi á Akureyri 1946-1958. Formaður Ræktunarfélags
Norðurlands 1952-1971. Ráðunautur Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins 1955-1967.
Dvaldist þrjá mánuði í Bandaríkjunum 1956 í boði Bandaríkjastjórnar og
flutti fyrirlestra við háskóla þar. Héraðssáttasemjari 1957-1971. Vann
vestanhafs sumarið 1958 að söfnun heimilda að æviskrám Vestur-Íslendinga.
Formaður Alþýðuflokksfélags Akureyrar 1962-1964. Sat ráðstefnu í Sviss
1962 á vegum OECD um endurbætur á líffræðikennslu í menntaskólum. Sat á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1965. Í endurskoðunarnefnd menntaskólalaga
1967-1969. Í samstarfsnefnd menntaskólanna 1969-1972. Grasafræðiráðunautur
við gróðurkortagerð Rannsóknastofnunar landbúnaðarins í Grænlandi 1977-1981.
Landsk. alþm. (Ísaf.) 1959 (Alþfl.).
Landsk. vþm. (Ak.) maí 1947.
2. varaforseti Nd. 1959.
Höfundur margra fræðirita og ritgerða,
einkum um náttúru Íslands og þætti úr sögu lands og þjóðar. Mikilvirkur
þýðandi, einkum ferðabóka um Ísland. Sjálfsævisaga í tveim bindum: Sól
ég sá, kom út 1982-1983.
Ritstjóri: Ferðir (1940-1941).
Heima er best (1956-1988). Flóra (1963-1968). Alþýðumaðurinn (1964-1965).
Reykjalundur (1966).
Reference: http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=552
(sótt 24. júlí 2004). Ísl. samtíðarmenn II, 272-273
Related objects







