Björn Ólafsson

26.11.1895 - 11.10.1974
Roles
Ráðherra
Place
Staður: Hringbraut 10, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: For.: Guðmundur Ólafsson (f. 5. nóv. 1852, d. 14. mars 1901) útvegsbóndi þar og 2. k. h. Ingibjörg Ólafsdóttir (f. 16. febr. 1869, d. 18. okt. 1964) húsmóðir. K. (22. nóv. 1929) Ásta Pétursdóttir (f. 1. des. 1906, d. 25. des. 1968) húsmóðir. For.: Pétur Sigurðsson og k. h. Jóhanna Gestsdóttir. Börn: Pétur (1930), Ólafur (1932), Edda (1934), Iðunn (1937). Póstmaður í Reykjavík 1908—1916. Verslunarfulltrúi 1916—1918. Stórkaupmaður og iðnrekandi frá 1918 til æviloka. Skip. 16. des. 1942 fjármála- og viðskiptamálaráðherra, lausn 16. sept. 1944, en gegndi störfum til 21. okt. Skip. 6. des. 1949 fjármála- og viðskiptamálaráðherra að nýju, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars. Skip. sama dag mennta- og viðskiptamálaráðherra, lausn 11. sept. 1953. Fulltrúi í bæjarstjórn Reykjavíkur 1922—1928. Aðalhvatamaður að stofnun Ferðafélags Íslands og forseti þess 1929—1934. Stofnandi og síðar formaður Bálfarafélags Íslands. Átti sæti í innflutnings- og gjaldeyrisnefnd 1930—1937. Kosinn 1940 í mþn. um gjaldeyrisverslun og innflutningshömlur, 1941 og 1942 í gjaldeyrisvarasjóðsnefnd og 1954 í togaranefnd. Skip. 1954 í endurskoðunarnefnd laga um lax- og silungsveiði. Kosinn 1955 í okurnefnd. Í bankaráði Útvegsbankans 1957—1968, formaður 1965—1968. Skip. 1960 í endurskoðunarnefnd skattalaga, formaður nefndarinnar. Alþm. Reykv. 1948—1959 (Sjálfstfl.). Fjármála- og viðskiptamálaráðherra 1942—1944 og 1949— 1950, mennta- og viðskiptamálaráðherra 1950—1953.
Related objects