Guðmundur Karlsson
2.10.1927 - 15.06.1999
Roles
Sjómaður, Kerfisfræðingur
Place
Staður: Lindarflöt 13, 210-Garðabær, Garðabær, Garðabær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Garðabær, Garðabær
Sveitarfélag 1950: Garðahreppur
More information
Vefbirting:
Var á Kárastíg 8, Reykjavík 1930. Kerfisfræðingur, síðast búsettur í Garðabæ.
Guðmundur Karlsson fæddist í Reykjavík 2. október 1927. Hann lést á heimili sínu 15. júní 1999.
Foreldrar: Margrét Tómasdóttir ljósmóðir og Karl Guðmundsson, rafvélavirkjameistari og sýningarstjóri í Tjarnarbíói og síðar í Háskólabíói.
Systkini Guðmundar eru Ásta Guðrún, f. 6.10. 1926, látin; Hrefna Sigríður, f. 25.1. 1930, húsmóðir í Reykjavík; Anna Kristjana, f. 2.1. 1932, látin; Margrét Björk, f. 15.1. 1933, látin; Kristinn, f. 18.2. 1935, járnsmiður í Reykjavík; Tómas, f. 20.2. 1937, látinn; Einar, f. 7.3. 1939, búsettur í Reykjavík; Ragnar, f. 22.4. 1942, búsettur í Reykjavík.
Maki: Árný Hrefna Árnadóttir, f. 21.10. 1933, fulltrúi.
Börn Guðmundar og Hrefnu eru
1) Karl, f. 24.12. 1954, d. 27.4. 1988, stýrimaður í Garðabæ, var kvæntur Hólmfríði Birnu Sigurðardóttur sjúkraliða og áttu þau fósturson.
2) Ásdís Elín, f. 14.1. 1961, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Claus Hermanni Magnússyni vélstjóra og eiga þau tvö börn.
3) Hrefna Margrét, f. 13.7. 1962, nemi í Hafnarfirði og á hún þrjár dætur.
4) Anna, f. 25.1. 1968, fulltrúi í Kópavogi, gift Árna Sæmundi Unnsteinssyni sölustjóra og eiga þau einn son.
Guðmundur útskrifaðist úr fiskimanna- og farmannadeild Stýrimannaskólans 1952. Hann stundaði sjómennsku á ýmsum skipum til ársins 1960 er hann hóf störf hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar. Árið 1965 hóf hann störf hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli sem kerfisfræðingur og vann þar til ársins 1996. Guðmundur var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Brúar á Keflavíkurflugvelli og var fyrsti forseti hans.
Reference:
https://www.islendingabok.is/search
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/476166/?item_num=16&searchid=51156bd93519d4b1f1702bddd77d9b704d9a60cc
Related objects





