Böðvar Marteinsson

28.5.1875 - 1.11.1956
Roles
Bóndi, Járnsmiður
Place
Staður: Hrútsstaðir, Rútsstaðir, 371-Búðardal, Dalabyggð, Laxárdalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Sveitarfélag 1950: Laxárdalshreppur Staður: Hamraendar, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Stafholtstungur, Ísland Sveitarfélag 1950: Stafholtstungnahreppur
More information
Vefbirting: Fluttist vestur í Dali um fermingaraldur og var þar í vinnumennsku, lengst af í Hvammssveit. Var kafla úr vetri við járnsmíðar hjá Finnboga Jakobssyni járnsmið á Fögrubrekku í Hrútafirði. Járnsmiður og sérstaklega þekktur fyrir smíði á beislisstöngum. Lausamaður og vann við járnsmíðar og var á Laugabóli í Djúpi á vorin. Átti lengi heimili í Ásgarði í Hvammssveit. Bjó í þrjú ár í Saurbænum en settist að í Búðardal við Hvammsfjörð 1911. Bóndi á Hrútsstöðum í Laxárdal 1920-41. Reisti hann það býli úr auðn og byggði öll hús frá grunni. Járnsmiður; stundaði einnig nokkuð húsasmíðar. For. Marteinn Magnússon frá Smiðjuhólsveggjum og Hallfríður Þórðardóttir frá Ytra-Hólmi. Kona Böðvars var Guðbjörg Jónsdóttir frá Glerárskógum. Börn þeirra voru Árni, Magnús, Sólveig og Hallfríður. Fóstursonur þeirra var Kristinn Sigurjónsson.   Reference: Jón Guðnason. 1961. Dalamenn I. Bls. 362-363. Minningargrein. Mbl. 26.2.1957, bls. 14.
Related objects