Bertram Henry Möller
11.1.1943 - 20.01.2007
Roles
Rannsóknarlögreglumaður, Tónlistarmaður
Place
Staður: Tunguvegur 24, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting:
Bertram Henry Möller fæddist í Reykjavík hinn 11. janúar 1943.
Foreldrar hans voru Guðrún Möller, f. 3.7. 1914, d. 18. feb. 1994, og Betram Henry Mallet, f. 22.1. 1912. Bertram var einkabarn.
Hinn 30. maí 1964 kvæntist hann Guðríði Erlu Halldórsdóttur, f. 16.2. 1945, frá Hörgslandi á Síðu í V-Skaftafellssýslu.
Börn Bertrams og Erlu eru: 1) Guðrún Möller, f. 30.10. 1964, maki Ólafur Árnason, f. 18.10. 1966. Börn þeirra eru: Kristófer, f. 1987, Erla Alexandra, f. 1994, Birna Ósk, f. 1997, og Sylvía Sara, f. 2001. 2) Sóley Halla Möller, f. 29.3. 1969, maki Hjörtur Bergstað, f. 15.12. 1964. Börn þeirra eru: Valdimar, f. 1989, og Kristján Henry, f. 1996. 3) Einar Kári Möller, f. 20.4. 1978. Dóttir hans og Kristínar Örnu Ingólfsdóttur er Andrea Dís, f. 2001. Fyrir átti Bertram soninn Hákon Gunnar Möller, f. 29.9. 1962, maki, Linda Möller. Sonur þeirra er Jóel Gunnar, þau eru búsett í Bandaríkjunum.
Bertram ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur og stundaði nám í Melaskóla og Hagaskóla. Að grunnskóla loknum stundaði hann nám í Verzlunarskóla Íslands. Bertram hóf störf hjá Lögreglunni í Reykjavík árið 1964. Árin 1970–1971 starfaði hann hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Hann starfaði í hinum ýmsu deildum Lögreglunnar, umferðardeild, almennri deild, slysarannsóknardeild og Rannsóknarlögreglu ríkisins. Hann lét af störfum í Lögreglunni 1. mars 2003. Tónlistin átti hug og hjarta Bertrams alla ævi, enda var hann landsþekktur söngvari og hljóðfæraleikari. Allt frá unglingsárum söng hann og lék á gítar á dansleikjum víða um land með fjölda hljómsveita, m.a. Falcon, Sextett Berta Möller, Hljómsveit Árna Elfars og Hljómsveit Svavars Gests, en lengst af með Lúdó Sextett. Bertram var virkur meðlimur í Frímúrarareglunni frá árinu 1982.
Related objects

