Haraldur Guðmundsson
26.7.1892 - 23.10.1971
Roles
Alþingismaður, Ráðherra
Place
Staður: Hávallagata 33, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting:
For.: Guðmundur Guðmundsson (f. 7. júlí 1859, d. 2. jan. 1935) prestur þar, síðar ritstjóri á Ísafirði og k. h. Rebekka Jónsdóttir (f. 15. maí 1865, d. 29. maí 1959) húsmóðir, dóttir Jóns Sigurðssonar alþm. á Gautlöndum.
K. (14. febr. 1931) Margrét Brandsdóttir (f. 25. mars 1905, d. 31. mars 1976) húsmóðir. For.: Brandur Jónsson og k. h. Jóhanna Jóhannsdóttir.
Börn: Haukur (1931), Hrafn (1932), Þóra (1935), Rebekka (1939), Jóhanna (1943).
Gagnfræðapróf Akureyri 1911.
Stundaði kennslu á vetrum, en vegavinnu, síldarmat o. fl. á sumrum árin 1912—1919. Gjaldkeri í útibúi Íslandsbanka á Ísafirði 1919—1923. Blaðamaður í Reykjavík 1924. Kaupfélagsstjóri í Reykjavík 1925—1927. Ritstjóri í Reykjavík 1927—1931. Útibússtjóri Útvegsbankans á Seyðisfirði 1931—1934. Skip. 28. júlí 1934 atvinnu- og samgöngumálaráðherra, lausn 20. mars 1938. Skip. 1938 forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins. Skip. 1957 sendiherra í Ósló og síðar jafnframt sendiherra í Tékkóslóvakíu og Póllandi, lausn 1963.
Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1926—1931. Skip. 1927 í ríkisgjaldanefnd, 1942 í tryggingamálanefnd og 1949 í samninganefnd um viðskipti milli Íslands og Bretlands og einnig milli Íslands og Danmerkur. Kosinn 1928 í mþn. um tolla- og skattalöggjöf landsins og 1938 í togaraútgerðarnefnd. Átti sæti í landsbankanefnd 1928—1936, gjaldeyrisvarasjóðsnefnd 1942, Þingvallanefnd 1938—1946 og 1950— 1957 og stjórnarskrárnefnd 1942—1947. Formaður Alþýðuflokksins 1954— 1956. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1956.
Alþm. Ísaf. 1927— 1931, alþm. Seyðf. 1931—1942, landsk. alþm. 1942— 1946, alþm. Reykv. 1949—1957 (Alþfl.).
Vþm. Reykv. júlí—sept. 1946.
Atvinnu- og samgöngumálaráðherra 1934—1938. Forseti Sþ. 1938—1941 og 1942—1943. Ritstjóri: Alþýðublaðið (1927—1931).
Reference:
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 28522 - 31552.
Related objects







