Bergþór Þorsteinsson
9.2.1900 - 05.07.1981
Roles
Iðnverkamaður
Place
Núverandi sveitarfélag: Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshreppur
Sveitarfélag 1950: Reyðarfjarðarhreppur
Núverandi sveitarfélag: Fjarðabyggð, Fjarðabyggð
Staður: Þuríðarstaðir, 701-Egilsstöðum, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalur, Ísland
Sveitarfélag 1950: Fljótsdalshreppur
More information
Reference: Um daginn varstu að spyrjast fyrir um Bergþór Þorsteinsson, Mínar upplýsingarnar nú eru frá Soffíu Jónasdóttur fóstur- og bróðurdóttur hans. Hann hélt því staðfastlega fram að hann væri fæddur 9. febrúar árið 1900 og væri því skáður með rangan fæðingardag (10.01. 1900) í þjóðskrá, en gat ekki fengið því breytt, það er víst ekki gert ráð fyrir leiðréttingum á þeirri merkilegu skrá, konan hans átti fæðingarvottorð sem sagði hana fædda 1906 en hún var skráð fædd 1905 í skránni og fæðingarvottorðið dugði ekki til að fá því breytt. (merkilegt þegar hittist svona á hjá hjónum). Soffía veit ekki hvar Bergþór var fæddur, en Þorsteinn faðir hans er skráður bóndi á Þuríðarstöðum 1911-1925 þegar Jónas bróðir Bergþórs tók við ábúðinni. Hún veit ekki heldur hvenær Bergþór flutti til Reyðarfjarðar en telur það hafa verið fyrir eða um 1940, frá Reyðarfirði til Akureyrar flutti hann sextugur að aldri og átti þar heima eftir það til æfiloka. Ég sendi þessar upplýsingar til fróðleiks og skemmtunar.
Kveðja Bergljót Þórarinsdóttir.
Related objects

