Hans Hansson Wíum
2.1.1875 - 6.4.1957
Roles
Verkamaður, Bóndi
Place
Staður: Hruni, 880-Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppur, Brunasandur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Skaftárhreppur, Skaftárhreppur
Staður: Keldunúpur, 880-Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppur, Síða, Ísland
Sveitarfélag 1950: Hörgslandshreppur
More information
Vefbirting:
Hans Hansson Wíum, f. 2.1. 1875 á Keldunúpi á Síðu, d. 6.4. 1957 á Höfn, 82 ára. For.: Hans Wíum Jónsson, f. 18.9. 1836, d. 9.9. 1878 (VSk 2:151), og kona hans, Guðrún Magnúsdóttir, f. 19.8. 1839, d. 21.3. 1884 (VSk 2:71). Stjúpfaðir: Jón Jónasson, f. 16.2. 1850, d. 11.12. 1923 (VSk 2:340). Í foreldrahúsum á Keldunúpi 1875-78, hjá móður sinni þar 78-84, hjá stjúpföður sínum þar 84-86, léttadrengur í Vesturbœ á Smyrlabjörgum 87-92, vinnumaður í Gamlagarði í Borgarhöfn 92-96, í Lækjarhúsum þar 96-98, í Syðri-Vík í Landbroti 98-99, á Kálfafelli í Fljótshverfi 99-01, á Kálfafellsstað 01-02, húsmaður á Sléttaleiti 02-03, bóndi þar 03-08, á Gerði 08-38, átti heima á Höfn 38-51. Stofnfélagi í kaupfélaginu. Yfirhöfuð vel að sér, skráði séra Sveinn Eiríksson.
Kona 24.6. 1905: *Lucia Þorsteinsdóttir, f. 1862, d. 1954. Dóttir þeirra: *Sigrún, f. 1904. Fósturbörn: *Snjálaug Júlíana Jónsdóttir, f. 1892, *Lúðvík Guðmundur Gestsson, f. 1897(systursonur Luciu), *Rósa Þorsteinsdóttir, f. 1909 (systurdóttir Hans).
Hans faðir Hans var sonur *Jóns Pálssonar, f. 1800. Guðrún móðir Hans var dóttir Magnúsar Jónssonar, f. 1.4. 1800, d. 10.5. 1888 (VSk 3:69), og konu hans, Guðrúnar Gissursdóttur, f. 8.10. 1806, d. 9.11. 1878 (VSk 2:46). Þau bjuggu í Austurbœnum í Hólmi í Landbroti. Jón stjúpfaðir Hans var sonur Jónasar Oddssonar, f. 20.3. 1822, d. 15.6. 1883 (VSk 2:420n), og konu hans, Þuríðar Jónsdóttur, f. 26.5. 1821, d. 16.6. 1883 (VSk 4:293). Þau bjuggu á Hruna á Brunasandi.
Hans ólst um skeið upp hjá *Páli Benediktssyni, f. 1845, d. 1921, og konu hans, *Guðrúnu Vilborgu Hallsdóttur, f. 1848, d. 1948.
Ekki er alltaf eins í heimildum, hvernig nafn þessa manns var skráð. Til dœmis finnst hann kallaður Hansvíum Hansvíumsson og Hans Hansvíumsson.
Þegar Hans fluttist á Höfn, keypti hann íbúðarhúsið Vinaminni og gaf því nafnið Draumaland. Það stóð miðsvæðis í áfangastaðnum fyrir innan Litlubrú. Það var steinsteypt og portbyggt, 28 m² að grunnfleti. Niðri voru eldhús, geymsla og stofa en uppi tvö svefnherbergi. Á lóðinni voru steypt hlaða, tveggja kúa fjós og sauðahús fyrir 36 fjár. Hans leigði sér ræktunarland á Höfn og hafði smábúskap en starfaði annars sem verkamaður.
Hans tók 1920 þátt í að stofna Kaupfélag Austur-Skaftfellinga. Hann gekk í Atvinnufélag Hafnarverkalýðs 1939 en tók 1942 þátt í að leggja það niður og stofna í staðinn Verkalýðsfélagið Jökul. Hann beitti sér fyrir samhjálp félagsmanna, og í framhaldinu var stofnaður Styrktarsjóður Jökuls. Hans tók 1951 þátt í að stofna Fiskiðjuna Höfn, sem var ætlað að bœta atvinnu í plássinu, en fljótlega varð að samkomulagi, að kaupfélagið yfirtók áform fiskiðjumanna.
Steinþór Þórðarson sagði: “Hans var hrókur alls fagnaðar og stóð vel með okkur í því að koma öllu samkvæmislífi af stað. Hann átti harmoniku, hann spilaði á hana, og þar áttum við alltaf vísan mann til að spila fyrir dansi fyrir okkur.”
Related objects


